Fréttir
02.10.2008 - Sólný Pálsdóttir opnar ljósmyndasýningu
 

Við hér á heimasíðunni fylgjumst gjarnan með burtfluttum Djúpavogsbúum sem eru að gera garðinn frægan.
Sólný Pálsdóttir er okkur hér á Djúpavogi að góðu kunn, en Sólný bjó hér á Djúpavogi um árabil ásamt Sveini Ara Guðjónssyni og börnum þeirra.
Frá því þau Svenni og Sólný fluttu frá Djúpavogi til Grindavíkur
hefur Sólný lagt stund á ljósmyndanám og er nú útskrifuð frá
Ljósmyndaskólanum.  Á vefsíðu Grindavíkur, sjá hér meðfylgjandi
texta, má sjá að Sólný ætlar að opna sínu fyrstu ljósmyndasýningu
í Saltfisksetrinu í Grindavík  þann 4 okt. Heimasíða Djúpavogs óskar
hér með Sólný innilega til hamingju með frumraun sína á þessu sviði.  
Sýningin mun standa yfir til 20 okt.  AS

 

Sólný Pálsdóttir opnar ljósmyndasýningu í Saltfisksetrinu
laugardaginn 4. október kl 14:00

Sólný Pálsdóttir opnar ljósmyndasýningu í Listasal
Salfisksetursins Hafnargötu 12a Grindavík laugardaginn
4. okt. Kl. 14:00

 

Sólný er fædd og uppalin í Grindavík. Hún er kennaramenntuð en ákvað að láta gamlan draum rætast og læra ljósmyndun. Hún er nemandi í Ljósmyndaskólanum  og útskrifast þaðan um áramót. 

 

Sýningin ber heitið Gegnumbrot og vísar nafnið m.a. til myndanna sem eru teknar  á  Holgu, filmuvél sem býður upp á ýmsa möguleika í ljósmyndun. Þetta eru persónulegar myndir sem allar eru teknar á uppáhaldstöðum ljósmyndarans í  Grindavík. 

Á sýningunni verður einnig verk sem Sólný vann sem lokaverkefni á fyrsta ári í Ljósmyndaskólanum. Sýningin stendur til 20. okt.

 

Saltfisksetrið er opið alla daga frá 11:00 – 18:00.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Veðrið í dag
Veðurstöðin Papey kl.11:00:00
Hiti:0,8 °C
Vindátt:A
Vindhraði:3 m/sek
Vindhviður:4 m/sek
 
 
Veðurstöðin Teigarhorn kl.11:00:00
Hiti:0,6 °C
Vindátt:ASA
Vindhraði:1 m/sek
Vindhviður:2 m/sek
 
 
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.11:00:00
Hiti:0,5 °C
Vindátt:A
Vindhraði:1 m/sek
Vindhviður:2 m/sek
 
 
Flóð og Fjara: 19.4.2024
smþmffl
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
             
Fjölmenningarsetur
Fiskmarkaður Djúpavogs
Ísland.is