Þann 1. desember hefja Sparisjóðurinn og VÍS samstarf á Djúpavogi.
Guðný Helga Baldursdóttir verður þjónustustjóri VÍS á Djúpavogi og í nágrenni og mun þjóna viðskiptavinum og bjóða tryggingaþjónustu VÍS og Lífís. Samstarf VÍS og Sparisjóðsins felur meðal annars í sér tilboð á tryggingavernd til viðskiptavina í vildarþjónustu Sparisjóðsins.
Viðskiptavinir Sparisjóðsins sem greiða iðgjöld sín með bein-eða boðgreiðslum fá 5% afslátt af grunntryggingum hjá VÍS og gildir tilboðið strax við nýskráningu trygginga eða við næstu endurnýjun iðgjalda.
Sparisjóður Vestmannaeyja rekur útibú í Hveragerði, Selfossi, Vestmannaeyjum, Höfn, Breiðdalsvík og Djúpavogi og nær tilboð VÍS til allra viðskiptavina Sparisjóðsins sem eru í vildarþjónustu.
Skrifstofa VÍS verður opnuð þann 1. desember í útibúi Sparisjóðsins að Markarlandi 1.
Af því tilefni verður boðið upp á kaffi og kökur í Sparisjóðnum vikuna 1. – 5. desember frá kl. 11:00-16:00.
Allir velkomnir. Methúsalem Einarsson, Guðný Helga Baldursdóttir og Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir
|