Fréttir
23.01.2009 - Peran 2008 - Munu Biggi og Anna Sigrún verja titilinn?
 
Það styttist í að frestur til að skila inn atkvæðum fyrir Peruna 2008. Nú hafa þónokkrir sent inn atkvæði en við hvetjum alla til að nýta sinn atkvæðisrétt:
 
Menningarmálanefnd Djúpavogs efnir til lýðræðislegrar kosningar um bestu jólaskreytingu nýliðinnar hátíðar.

Kosningin fer þannig fram að hver og einn má kjósa 3 hús. Best skreytta húsinu / umhverfi (skv. mati þess sem atkvæðið greiðir) skal gefa 3 stig, því næsta 2 og síðan 1 atkvæði til þess húss / umhverfis, sem þar á eftir kemur.

Nóg er að nefna númer húss eða eiganda / eigendur.

Við gerum okkur grein fyrir því að svk. almanakinu þá klárast jólin í dag og má þá búast við að margir taki niður jólaskreytingar sínar, en flestir ættu nú samt að muna hvaða hús / umhverfi þeim fannst best skreytt.

Vinningshafinn mun síðan fá "Peruna" afhenta á Þorrablótinu, laugardaginn 31. janúar.

ATKVÆÐUM SKAL SKILA Á SKRIFSTOFU DJÚPAVOGSHREPPS EÐA NETFANGIÐ peran@djupivogur.is FYRIR KL. 13:00 MÁNUDAGINN 26. JANÚAR 2009.

Þeim sem ekki geta sent atkvæðin í tölvupósti bendum við á að prenta þessa frétt út, fylla út atkvæðaseðilinn hér fyrir neðan og skila á skrifstofu Djúpavogshrepps.
 
 
 

ATKVÆÐASEÐILL:

1. sæti (3 atkvæði): ____________________________________

2. sæti (2 atkvæði): ____________________________________

3. sæti (1 atkvæði): ____________________________________

Nafn þess sem kýs: _____________________________________

Veðrið í dag
Veðurstöðin Papey kl.10:00:00
Hiti:4,2 °C
Vindátt:SSA
Vindhraði:8 m/sek
Vindhviður:10 m/sek
 
 
Veðurstöðin Teigarhorn kl.10:00:00
Hiti:4,9 °C
Vindátt:NV
Vindhraði:1 m/sek
Vindhviður:6 m/sek
 
 
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.10:00:00
Hiti:5,1 °C
Vindátt:ANA
Vindhraði:4 m/sek
Vindhviður:7 m/sek
 
 
Flóð og Fjara: 20.4.2024
smþmffl
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
             
Fjölmenningarsetur
Fiskmarkaður Djúpavogs
Ísland.is