Fréttir
23.02.2009 - Komdu í land-námskeið á Djúpavogi
 

Útflutningsráð, Ferðamálastofa og Cruise Iceland samtökin hafa gert samkomulag um að Útflutningsráð standi fyrir fræðslu og ráðgjöf í hafnarbæjum sem eru meðlimir í Cruise Iceland samtökunum.

Námskeiðið "Komdu í land" verður haldið á Djúpavogi dagana 25.-26.febrúar nk.

Tilgangur námskeiðsins er að skoða möguleika á hverjum stað fyrir sig og vinna í sameinungu að því hvernig hægt er að byggja upp aukna þjónustu fyrir farþega skemmtiferðaskipa og áhafnarmeðlimi sem ekki eru að fara í skipulagðar ferðir.   

Þetta verður ekki gert nema í sameinuðu átaki aðila og hefur því Útflutningsráð mikinn áhuga á ganga til liðs við sveitarfélög sem og atvinnuþróunarfélög/markaðsstofur í viðkomandi hafnarbæjum með það í huga að þeir taki fullan þátt í undirbúningi og vinnufundum og fylgi verkefninu síðan eftir t.d. með þátttöku í ráðgjöf og verkefnisstjórn.

Gjaldi fyrir þátttöku er mjög stillt í hóf eða kr. 15.000,- fyrir þátttakanda.

Allir þeir sem áhuga hafa á að nýta sér þetta námskeið eru hvattir til að mæta.

Nánari upplýsingar um námskeiðið veitir Ferða-og menningarmálafulltrúi Djúpavogshrepp, Bryndís, á netfangið bryndis@djupivogur.is eða í síma 478-8228.

 BR


Veðrið í dag
Veðurstöðin Papey kl.16:00:00
Hiti:-6,2 °C
Vindátt:NV
Vindhraði:12 m/sek
Vindhviður:16 m/sek
 
 
Veðurstöðin Teigarhorn kl.16:00:00
Hiti:-6,5 °C
Vindátt:NNV
Vindhraði:7 m/sek
Vindhviður:12 m/sek
 
 
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.16:00:00
Hiti:-6,7 °C
Vindátt:VNV
Vindhraði:7 m/sek
Vindhviður:17 m/sek
 
 
Flóð og Fjara: 13.12.2019
smþmffl
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        
             
Fjölmenningarsetur
Fiskmarkaður Djúpavogs
Ísland.is