Fréttir
04.03.2009 - Styrkir iðnaðarráðuneytis til uppbyggingar í ferðaþjónustu á landsbyggðinni
 

Ákveðið hefur verið að veita 100 milljónum króna af byggðaáætlun 2006 – 2009 til að styrkja uppbyggingu í ferðaþjónustu og renna frekari stoðum undir uppbyggingu atvinnugreinarinnar á landsbyggðinni.

Styrkirnir skiptast í tvo flokka og er nauðsynlegt að verkefnið sé atvinnuskapandi á viðkomandi svæði.

  • Móttökuaðstaða í höfnum fyrir farþega skemmtiferðaskipa: Varið verður 30 milljónum króna til upplýsingagjafar, fegrunar umhverfis, uppsetningar þjónustuhúss o.fl.
  • Nýsköpun í ferðaþjónustu: Varið verður 70 milljónum króna til uppbyggingar á nýjum svæðum, þróunar á nýrri vöru eða þjónustu er styrkir viðkomandi svæði sem ferðamannastað. Við mat á umsóknum verður sérstaklega horft til  nýsköpunargildis þeirrar vöru eða þjónustu sem sótt er um til.

Styrkir geta að hámarki numið 50% af heildarkostnaði verkefnisins.

Leitað er eftir umsóknum frá klösum í ferðaþjónustu, sveitarfélögum, fyrirtækjum, einstaklingum og félagasamtökum.

Hámarksstyrkur til einstaks verkefnis getur orðið allt að 20 milljónir króna. Verkefnin skulu að mestu unnin á árinu 2009 og verður fyrri helmingur styrksins greiddur við undirskrift samnings og seinni helmingur styrksins við verklok, enda liggi þá fyrir ítarleg skýrsla um framvindu verkefnisins sem sé í samræmi við umsókn.

Umsóknareyðublöð og -frestur
Vönduðum umsóknum með trúverðugri kostnaðaráætlun skal skilað á sérstökum umsóknareyðublöðum, sem hægt er að nálgast hér. Umsóknir skulu sendar fyrir 6.mars.nk

 Frétt af vef Þróunarfélags Austurlands - www.austur.is


Veðrið í dag
Veðurstöðin Papey kl.11:00:00
Hiti:0,8 °C
Vindátt:A
Vindhraði:3 m/sek
Vindhviður:4 m/sek
 
 
Veðurstöðin Teigarhorn kl.11:00:00
Hiti:0,6 °C
Vindátt:ASA
Vindhraði:1 m/sek
Vindhviður:2 m/sek
 
 
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.11:00:00
Hiti:0,5 °C
Vindátt:A
Vindhraði:1 m/sek
Vindhviður:2 m/sek
 
 
Flóð og Fjara: 19.4.2024
smþmffl
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
             
Fjölmenningarsetur
Fiskmarkaður Djúpavogs
Ísland.is