Fréttir
31.03.2009 - Spurningakeppni Neista - úrslitin eru í kvöld
 

Þá er komið að lokakvöldinu í spurningakeppni fyrirtækjanna en það verður á Hótel Framtíð, þriðjudaginn 31.mars kl.20:00.

Í úrslitum eru: Grunnskólinn (kennarar), HB Grandi, Fiskmarkaður Djúpavogs og Eyfreyjunes. Dregið verður á staðnum um það hvaða lið etja kappi saman en ljóst er að búast má við æsispennandi viðureign.

Í fyrra var það Eyfreyjunes sem sigraði en þá var Tryggvi Gunnlaugsson meðal liðsmanna og naut liðið góðs af óskeikulu minni hans. Í ár er Tryggvi hins vegar fjarri góðu gamni en liðsheildin þó alls ekki síðri því í stað Tryggva er komin frænka hans, Sóley Dögg Birgisdóttir. Það verður því forvitnilegt að fylgjast með hvort liðinu tekst að verja titilinn frá því í fyrra.

Við hvetjum sem flesta til þess að mæta á góða skemmtun og styðja ungennafélagið Neista í leiðinni. Í hléinu mun Jószef Kiss skemmta okkur með léttum söng.

Aðgangseyrir á spurningakeppnina er kr. 500

Ungmennafélagið Neisti

BR


Veðrið í dag
Veðurstöðin Papey kl.07:00:00
Hiti:1,6 °C
Vindátt:NV
Vindhraði:11 m/sek
Vindhviður:13 m/sek
 
 
Veðurstöðin Teigarhorn kl.07:00:00
Hiti:1,7 °C
Vindátt:NV
Vindhraði:4 m/sek
Vindhviður:13 m/sek
 
 
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.07:00:00
Hiti:0,9 °C
Vindátt:VNV
Vindhraði:10 m/sek
Vindhviður:17 m/sek
 
 
Flóð og Fjara: 06.12.2019
smþmffl
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        
             
Fjölmenningarsetur
Fiskmarkaður Djúpavogs
Ísland.is