 Þann 9.maí næstkomandi stendur Tengslanet Austfirskra Kvenna, TAK, fyrir mikilli handverks- hönnunar- og listakynningu á Hótel Framtíð á Djúpavogi. Lagt var upp með að fá eina konu úr hverju bæjarfélagi frá Hornafirði til Vopnafjarðar til að kynna verk sín og rekstur, en ásókn og áhugi á þessu er svo mikill að yfir 23 konur munu kynna og enn bætist í hópinn. Fjölbreytileikinn verður í fyrirrúmi og allar konur sem vilja kynna sér íslenskt handverk, hönnun og listir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Dagskráin er frá 13:00-16:00 og verður á þessa leið:
Vörur til sýnis í byrjun og létt spjall Súpa og brauð, kr. 850.- Kynning á TAK Kynning frá Austfirskum konum:
Hornafjörður, Árnína Guðjónsdóttir - Handverk úr grjóti og hrosshári. http://ninagud.123.is Hornafjörður, Nanný - Leirlist Djúpivogur, Ágústa Margrét Arnardóttir- Tösku- og fylgihluta hönnun og framleiðsla. www.gustadesign.is Djúpivogur, Kvennasmiðjan – Handverk úr lopa Breiðdalsvík, Guðlaug Gunnlaugsdóttir - Ás handverkshús og handverk úr lopa, garni og fl. Breiðdalsvík, Helga Melsted - Handverk úr silfri, járni og fl. Stöðvarfjörður, Sólrún Friðriksdóttir - Textíllistakona, handmáluð sjöl úr silki og þæfðri ull. www.123.is/solrun.frid Stöðvarfjörður, Rósa Valtingojer - Handverk úr keramik og leir, handmótaðir fuglar. Stöðvarfjörður, Þóranna Snorradóttir - Handunnið silfurskart og Salthúsmarkaðurinn. Stöðvarfjörður, Ingibjörg Eyþórsdóttir – Handunnin náttúru smyrsli. Fáskrúðsfjörður, Berglind Ósk Agnarsdóttir - Sagnalist. Neskaupsstaður, Theodóra Alfreðsdóttir - Handverk úr leir og ull. http://skorrahestar.123.is Neskaupsstaður, Anna Bjarnadóttir - Listasmiðjan Þórsmörk. Eskifjörður, Kata - Glerlist Reyðarfjörður, Hrafnhildur M. Geirsdóttir - Hrefnuber og jurtir, handgerðar sultur. Reyðarfjörður, Esther Ösp Gunnarsdóttir - Hárskraut hönnun og framleiðsla. www.harspangir.com Seyðisfjörður, Þórdís Bergsdóttir – Ullarvinnsla frú Láru, þæfð ull. Egilsstaðir, Ingunn Þráinsdóttir - Grafísk hönnun og bókagerð. www.heradsprent.is Egilsstaðir, Agnes Brá Birgisdóttir - Tónlist. www.warenmusic.com Egilsstaðir, Íris Lind - Myndlist og fleira. Egilsstaðir, Katrin Jóhannsdóttir - Fatahönnun og framleiðsla. www.katy.is Klaustursel, Ólafía Sigmarsdóttir - Handverk úr hreindýraleðri Fellabær, Sandra Jónsdóttir - Ljósmyndun og þrykk. Vopnafjörður, Hólmfríður Ófeigsdóttir- Prjónuð sjöl og handstúkur úr hreindýraleðri.
Þetta er einhver flottasti og fjölbreyttasti viðburður í handverki og hönnun sem haldinn hefur verið af Austfirskum konum.
Allar konur hjartanlega velkomnar og við vonumst við til að sjá sem allra flestar.








|