Sveitarstjórn Djúpavogshrepps auglýsir hér með tillögu að AÐALSKIPULAGI DJÚPAVOGSHREPPS 2008-2020, dreifbýli og þéttbýli, ásamt umhverfisskýrslu.
Tillagan er auglýst skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. og verður til sýnis í Ráðhúsi Djúpavogshrepps, Bakka 1 á Djúpavogi á venjulegum opnunartíma frá 6. júlí - 5. ágúst 2009. Jafnframt verður tillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík og á vefsíðu Djúpavogshrepps, www.djupivogur.is.
Þeir, sem vilja gera athugasemd við tillöguna, skulu gera það skriflega í síðasta lagi fyrir kl. 15:00 miðvikudaginn 19. ágúst 2009.
Athugasemdum skal skilað á skrifstofu Djúpavogshrepps, Ráðhúsinu, Bakka 1, 765 Djúpavogi. Þeir sem ekki gera athugasemd við tillögu þessa innan tilskilins frests teljast samþykkir tillögunni.
Sveitarstjóri |