Við viljum bara minna á þessa gátu sem nú er í gangi:
Föstudagsgátan að þessu sinni er stór og mikil, en hana fengum við senda alla leið frá Noregi, n.t.t. frá Ingþóri Sigurðarsyni. Ekki fylgdi sendingunni hver væri höfundurinn. Þetta er semsagt nafnagáta og kemur eitt karlmannsnafn fyrir í hverri línu. Ætli sé ekki best að gefa lesendum jólahátíðina til að ráða gátuna og því setjum við frestinn á föstudaginn 8. janúar 2010. Svör sendist á netfangið djupivogur@djupivogur.is.
Einn í dufti ávallt skríður annar skort á mörgu líður oft hinn þriðja eykir draga auga úr kind vill fjórði naga Er sá fimmti aðkomandi ætli ég sjötti i veggjum standi sjöundi gamall alltaf er áttunda a hverri nál þú sérð Níundi múgur nefnist manns nafn ber tíundi skaparans ellefti verður aldrei beinn á þeim tólfta er saur ei neinn Sá þrettándi byrjar viku hverja dauðinn mun ei a þann fjórtanda herja sá fimmtándi hirðir mest um slátt með þeim sextánda næ ég andanum brátt
ÓB
|