Keppnisdögunum í grunnskólanum lauk í gær með miklu fjör í íþróttahúsinu. Við skiptum krökkunum í 1.-5. bekk í fjögur lið og krökkunum í 6.-10. bekk í önnur fjögur lið. Liðin kepptu í sundi, íþróttum, samfélagsfræði, myndmennt, heimilisfræði og hæfileikakeppni. Fyrirkomulagið er þannig að sigurliðið í hverri grein fær 8 stig, liðið í öðru sæti 6, liðið í þriðja sæti 4 og liðið í síðasta sæti fær 2 stig. Jöfnum höndum gefum við liðunum stig fyrir háttvísi þannig að liðið sem vinnur best saman og er með bestu liðsheildina fær 8 stig, liðið sem stóð sig næst best, 6 stig og þannig koll af kolli. Í lokin leggjum við saman annars vegar stigin í keppninni sjálfri og hins vegar stigin fyrir háttvísina. Þannig fást sigurvegarar í hvorum flokki fyrir sig, á báðum aldurshópum. Sigurvegarar í yngri hópnum var liðið: SVARTA STJARNAN en háttvísiverðlaunin hjá yngri félllu í skaut DJ. Hjá eldri sigruðu KILLERS og hlutu þau einnig háttvísiverðlaunin.
Myndir frá öllum keppnisdögunum má finna hér fyrir neðan:
Keppnisdagur 1
Keppnisdagur 2
Keppnisdagur 3
HDH |