Við Grunnskóla Djúpavogs vantar kennara í eftirfarandi stöður næsta skólaár:
Íþróttir og sund um 13 kst., heimilisfræði, um 8 kst., textílmennt um 6 kst., myndmennt um 6 kst., upplýsinga- og tæknimennt um 12 kst., dönsku um 8 kst., náttúrufræði á unglingastigi um 7 kst., kennslu yngri barna um 16 kst., umsjón á unglingastigi. Auk þess vantar skólastjóra í afleysingar, vegna fæðingarorlofs, frá 1. september 2010 – 15. maí 2011.
Umsóknarfrestur er t.o.m. 10. maí 2010 og skulu umsækjendur taka fram, um hvaða stöðu / kennslugreinar sótt er um og einnig hversu hátt stöðuhlutfall óskað er eftir.
Umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu skólans, http://djupivogur.is/grunnskoli/.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri, Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir; dora@djupivogur.is eða í síma 478-8246.
|