Fréttir
05.03.2007 - “Fuglarnar í garðinum okkar”
 

Fyrirlestur: Einar Ó Þorleifsson náttúrufræðingur.

Hótel Framtíð miðvikudaginn 7 mars kl 20:15.

Þetta er mynda- og glærusýning. Sýndar verða myndir af fjölda fugla og mörgu því sem tengist fuglagarðinum; fuglahúsum, fuglafóðrurum og fóðurbrettum.

Einar mun fjalla um fuglana í garðinum, miðla af áralangri reynslu sinni af fuglafóðrun, gerð fuglahúsa, fóðurbretta og fuglabaða. Hann fjallar einnig um helstu fuglategundir sem er að vænta í góðum fuglagarði og hvernig er hægt að laða fugla að garðinum með vali og gróðursetningu á fuglavænum trjám og runnum sem skapa skjól og hreiðurstaði eða fæðu handa fuglunum. Miklar breytingar hafa orðið á fuglafánu landsins á undanförnum áratugum vegna aukinnar ræktunar og verður getið um nýja landnema og tegundir sem líklegt er að muni setjast hér að á komandi árum.

Nánari upplýsingar veitir

Einar Ó Þorleifsson í síma 562 0477

Netfang: einar@fuglavernd.is


Veðrið í dag
Veðurstöðin Papey kl.12:00:00
Hiti:0,4 °C
Vindátt:A
Vindhraði:3 m/sek
Vindhviður:4 m/sek
 
 
Veðurstöðin Teigarhorn kl.12:00:00
Hiti:0,5 °C
Vindátt:S
Vindhraði:3 m/sek
Vindhviður:4 m/sek
 
 
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.12:00:00
Hiti:0,7 °C
Vindátt:A
Vindhraði:1 m/sek
Vindhviður:3 m/sek
 
 
Flóð og Fjara: 19.4.2024
smþmffl
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
             
Fjölmenningarsetur
Fiskmarkaður Djúpavogs
Ísland.is