Djúpavogshreppur auglýsir vinnu fyrir sumarið 2010:
1. UNGLINGAR
Nemendum í 8., 9. og 10. bekk í Grunnskóla Djúpavogs stendur til boða vinna á vegum sveitarfélagsins sumarið 2010 sem hér greinir:
8. bekkur: Frá 7. júní til og með 30. júlí: 4 klst. á dag. Laun skv. kjs. AFLs. 9. bekkur: Frá 7. júní til og með 30. júlí: 4 klst. á dag. Laun skv. kjs. AFLs. 10. bekkur: Frá 7. júní til og með 13. ág.: 8 klst. á dag. Laun skv. kjs. AFLs.
Umsóknarfrestur til 25. maí (umsóknir berist á skrifstofu sveitarfél.)
Einnig verður í boði vinna í hefðbundinni hreinsunarviku fyrir 4. – 7. bekk og mun hún verða auglýst í skólanum.
2. “STÁLPAÐIR OG STÆÐILEGIR”:
Djúpavogshreppur auglýsir eftirt. tímabundin sumarstörf til umsóknar: Auglýst eru allt að 4 störf fyrir 17 ára og eldri við slátt lóða og opinna svæða, hreinsun, snyrtingu o.m.fl. Hluti af störfunum verður við “flokks-stjórn” og skulu áhugasamir taka slíkt fram í umsókn. (Fjöldi flokksstjóra verður ákveðinn, þegar fyrir liggur fjöldi umsækjenda úr Grunnskólanum og úr hópi “stálpaðra og stæðilegra”). Launakjör skv. kjarasamn. AFLs.
Næstu yfirmenn eru “blómadrottning” og verkstjóri í Þjónustumiðstöð.
Umsóknarfrestur til 25. maí (umsóknir berist á skrifstofu sveitarfél.)
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf eigi síðar en í byrjun júní.
Nánari upplýsingar, m. a. um launakjör í síma 478-8288.
Sveitarstjóri |