• Forsíða |
• Stjórnsýsla |
• Djúpivogur |
• Cittaslow |
• Náttúra |
• Myndasafn |
• Innsent efni |
• Laus störf |
• Tenglar |
• Hafa samband |
• English |
• Endurvinnslukort |
28.03.2011 - Auglýsing um verkefnastyrki Menningarráðs Austurlands |
Menningarráð Austurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki á grunni samnings sveitarfélaga á Austurlandi og mennta- og menningarmálamálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis um menningarmál. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Austurlandi. Smellið á lesa meira til að fá nánari upplýsingar. Áherslur ársins 2011. Menningarráð Austurlands hefur ákveðið að árið 2011 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða: Umsóknarfrestur er til og með 30. mars og fer úthlutun fram í apríl. Fyrirvari er gerður um frágang og undirritun nýs menningarsamnings við ríkið fyrir þann tíma sem og innbyrðis samning milli sveitarfélaga á starfssvæði ráðsins vegna hins sama. Með umsókninni verður að fylgja greinargóð lýsing á verkefninu með verkáætlun og tímasetningum, ítarleg fjárhagsáætlun (kostnaðar- og tekjuáætlun) og upplýsingar um aðstandendur. Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Austurlands á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á heimasíðunni. http://www.menningarrad.is/ Þar er einnig að finna stefnu sveitarfélaga á Austurlandi í menningarmálum, nýjar úthlutunarreglur og aðrar upplýsingar fyrir umsækjendur. Styrkþegar frá síðasta ári verða að hafa skilað inn greinargerð skv. samningi til þess að þeir geti sótt um fyrir 2011. Allar nánari upplýsingar veitir Signý Ormarsdóttir, menningarfulltrúi á Austurlandi, í síma 471-3230, 860-2983 eða með tölvupósti menning@menningarrad.is Umsóknir skal senda í tölvupósti á menning@menningarrad.is og í átta eintökum i ábyrgðarpósti, til Menningarráðs Austurlands, pósthólf 123, 700 Egilsstaðir. BR |
Veðurstöðin Papey kl.03:00:00 | |
Hiti: | 2,7 °C |
Vindátt: | S |
Vindhraði: | 10 m/sek |
Vindhviður: | 14 m/sek |
Veðurstöðin Teigarhorn kl.03:00:00 | |
Hiti: | 2,9 °C |
Vindátt: | SA |
Vindhraði: | 2 m/sek |
Vindhviður: | 6 m/sek |
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.03:00:00 | |
Hiti: | 3,1 °C |
Vindátt: | ANA |
Vindhraði: | 3 m/sek |
Vindhviður: | 7 m/sek |
Flóð og Fjara: 20.4.2024 |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|