• Forsíða |
• Stjórnsýsla |
• Djúpivogur |
• Cittaslow |
• Náttúra |
• Myndasafn |
• Innsent efni |
• Laus störf |
• Tenglar |
• Hafa samband |
• English |
• Endurvinnslukort |
04.05.2011 - Leiksýningin Prumpuhóllinn |
Foreldrafélag leikskólans og Foreldrafélag grunnskólans tóku sig saman og buðu nemendum leikskólans og nemendum 1-6 bekkjar á leikritið Prumpuhóllinn eftir Þorvald Þorseinsson. Sýningin var í höndum Möguleikhússins sem mætti í leikskólann Bjarkatún þann 3. Maí sl. Leikritið fjallar um hana Huldu sem er nýflutt úr borginni og upp í sveit. Þegar hún fer í feluleik með Halla bróður sínum vill ekki betur til en hún villist og ratar ekki heim. Henni líst ekkert á þetta umhverfi þar sem allt er framandi; lyktin er náttúrufýla, grasið stingur og það eru pöddur út um allt! Við sérkennilegan hól sem gefur frá sér dularfull hljóð hittir hún Steina. Hann er kátur tröllastrákur í skrítnum fötum sem segir Huldu að hóllinn sé í raun pabbi sinn. Hann hafi lent í sólargeisla og orðið að steini eftir að hafa borðað rosalega mikinn hundasúrugraut. En hundasúrugrauturinn varð ekki að steini. Ónei, hann ólgar enn svo drynur í hólnum. Og fýlan..maður lifandi!
Það var ekki á öðru að sjá en nemendur skemmtu sér mjög vel eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Fleiri myndir má sjá á myndasvæði leikskólans, hér
ÞS |
Veðurstöðin Papey kl.05:00:00 | |
Hiti: | 1,8 °C |
Vindátt: | NNA |
Vindhraði: | 17 m/sek |
Vindhviður: | 23 m/sek |
Veðurstöðin Teigarhorn kl.05:00:00 | |
Hiti: | 0,6 °C |
Vindátt: | N |
Vindhraði: | 5 m/sek |
Vindhviður: | 9 m/sek |
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.05:00:00 | |
Hiti: | 1,2 °C |
Vindátt: | V |
Vindhraði: | 3 m/sek |
Vindhviður: | 7 m/sek |
Flóð og Fjara: 29.3.2024 |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|