Sökum þess að íslenska þjóðin er viti sínu fjær af spenningi fyrir Eurovision verður Hammondhátíð að bregðast við á viðeigandi hátt. Þar sem að Baggalútur er að koma að spila á laugardaginn ætlum við að bregða á það ráð að fá þá kumpána til að vera kynna á Eurovision á Hótel Framtíð. Þetta verður eitthvað.
Þar af leiðandi opnar salurinn á Hótel Framtíð kl. 19:00 í stað 20:30 og Evróvisjónkeppnin verður sýnd á breiðtjaldi og það er óhætt að búast við því að Baggalútsmenn fari á kostum sem kynnar. Þeir munu svo stíga á svið með sitt prógram fljótlega eftir að úrslitin hafa verið kunngjörð.
Athugið að miði á tónleika Baggalúts, hvort sem hann hefur verið keyptur í forsölu eða verður keyptur á staðnum, gildir sem aðgöngumiði á Eurovision gleðina.
Áfram Ísland - Áfram Hammond - Áfram Baggalútur!
|