Í gestavikunni, sem haldin var í Djúpavogsskóla um miðjan nóvember komu margir góðir gestir í grunn-. leik- og tónskólann. Er þetta í fyrsta sinn sem allir skólarnir eru opnir fyrir heimsóknum í heila viku og gafst þetta mjög vel. Ein af þeim sem kom í heimsókn var Auðbjörg frá Hvannabrekku. Hún mætti með kanínu með sér og heimsótti marga með kanínuna. Á Hvannabrekku er rekið býli sem kallast "Opinn landbúnaður" og það merkir að þangað eru allir velkomnir í heimsókn. Þar er líka margt að skoða og eigum við í Djúpavogsskóla eftir að nýta okkur það vonandi fyrr en síðar. HDH |