Skv. skóladagatali Djúpavogsskóla, sem samþykkt var af foreldrafélagi, fræðslunefnd og sveitarstjórn hefst páskafrí í Djúpavogsskóla eftir kennslu föstudaginn 30. mars.
Grunnskólinn hefst að nýju 12. apríl, en foreldraviðtöl verða 11. apríl. Fundarboð fara í póst til foreldra á morgun. Leikskólinn hefst að nýju 11. apríl, foreldraviðtöl verða 11., 12., 16. og 17. apríl. Fundarboð verða send í tölvupósti til foreldar, auk þess sem fundartíminn er auglýstur í forstofu leikskólans. Tónskólinn hefst 12. apríl.
Starfsdagur hjá starfsfólki Djúpavogsskóla er 10. apríl.
Skóladagatalið má finna á heimasíðum grunn- og leikskólans. Þar má finna allar upplýsingar um skipulag Djúpavogsskóla. HDH |