Í gær, 2. maí, hófst strandveiðitímabilið þetta sumarið. Strandveiðimennirnir okkar hafa verið í óðaönn að undirbúa bátana sl. vikur og eflaust komin spenna í marga þeirra að fara í fyrsta túrinn. Undirrituðum er til efs að sjómenn hafi geta beðið um betra veður, slíkt var lognið og blíðan bæði þegar þeir sigldu út um morguninn og þegar þeir lögðu að seinni partinn.
Skv. hafnarverði komu á land rúmlega 9 tonn í gær og hann talaði um að flestir hefðu náð skammtinum.
ÓB
Greifinn undir krananum
Guðný SU
Guðný SU
Freyr SU rennir sér inn
Freyr SU undir krananum, Guðný SU að taka olíu
Sjómenn og aðrir skoða aflatölur dagsins |