• Forsíða |
• Stjórnsýsla |
• Djúpivogur |
• Cittaslow |
• Náttúra |
• Myndasafn |
• Innsent efni |
• Laus störf |
• Tenglar |
• Hafa samband |
• English |
• Endurvinnslukort |
11.07.2012 - Frábær árangur hjá sundkrökkunum okkar |
Sundkrakkarnir hjá Neista bættu enn einni rósinni í hnappagatið á Sumarhátíð UÍA sem haldin var um síðustu helgi. 13 krakkar mættu til leiks en 9 af þeim sem eru líka að æfa komust ekki á mótið. Voru menn því ekki allt of bjartsýnir á að sigur næðist að þessu sinni en þeir keppendur sem mættu voru komnir til að gera sitt allra besta. Að venju var vaskur hópur foreldra með í för og er frábært að sjá hversu mikil samheldni er hjá Neistafólkinu og umgjörðin um börnin eins og best verður á kosið. Eftir fyrri daginn voru menn farnir að gæla við að kannski næðist nú silfrið, þrátt fyrir að keppendurnir væru með fæsta móti og spennan jókst eftir því sem leið á keppnina á laugardagsmorgninum. Skemmtilegt var að fylgjast með boðsundunum í lokin og þegar verðlaunaafhendingin hófst mátti finna spennuna magnast. Fyrst voru veitt þátttökuverðlaun fyrir 10 ára og yngri en síðan stigaverðlaun í hverjum aldursflokki fyrir sig. Neisti átti þar tvo sigurvegara, þau Kamillu Marín Björgvinsdóttur í flokki 11-12 ára stúlkna og Bjarna Tristan Vilbergsson í flokki 13-14 ára drengja. Frábær árangur hjá þeim. Síðan voru lesin upp stig félaga og var byrjað á fimmta sætinu. Þegar ljóst var að helstu keppinautarnir í Hetti og Þrótti hefðu lent í 2. og 3. sæti upphófust mikil fagnaðarlæti hjá Neistafólkinu þegar ljóst var að fyrsta sætið væri okkar, fjórða árið í röð. Hér má sjá heildarstigin fyrir þrjú efstu sætin: Bjart er framundan í sundinu, fjölmennir árgangar eru að koma inn í grunnskólann og er hugur í þeim börnum. Ljóst er að ef við fullorðna fólkið höldum áfram að standa okkur þá höfum við alla burði til að skara áfram fram úr á þessu sviði. |
Veðurstöðin Papey kl.09:00:00 | |
Hiti: | 0,5 °C |
Vindátt: | NNA |
Vindhraði: | 19 m/sek |
Vindhviður: | 25 m/sek |
Veðurstöðin Teigarhorn kl.09:00:00 | |
Hiti: | -0,5 °C |
Vindátt: | NNA |
Vindhraði: | 3 m/sek |
Vindhviður: | 9 m/sek |
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.09:00:00 | |
Hiti: | 0,5 °C |
Vindátt: | VSV |
Vindhraði: | 4 m/sek |
Vindhviður: | 6 m/sek |
Flóð og Fjara: 29.3.2024 |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|