Úrslitakvöld í spurningakeppni Umf. Neista árið 2007 fór fram í Löngubúð laugard. 17. marz s.l. Í undanúrslitum þetta kvöld kepptu annars vegar lið Dvalarheimilisins Helgafells og lið Djúpavogshrepps og hins vegar lið Salar Islandica og Eyfreyjuness. Þrjú síðast töldu liðin sigruðu í forkeppninni og komst lið Helgafells inn í lokakeppnina sem stigahæsta tapliðið í forkeppninni.
Liði Helgafells, sem var eingöngu skipað konum og liði Salar, þar sem eingöngu var teflt fram karlmönnum, tókst að tryggja sér réttinn að keppa í úrslitum. Má því segja að andrúmsloft hafi verið rafmagnað, þegar úrslitahrinan hófst og ljóst var, að þarna yrði endanlega úr skorið um visku kynjanna í byggðarlaginu. Bæði lið stóðu sig mjög vel og þegar upp var staðið munaði einungis einu stigi. Réðust úrslit ekki fyrr en í síðustu spurningunni.
Það var lið Helgafells, sem sigraði, en það skipuðu: Ingibjörg Jónasdóttir, R. Margrét Friðfinnsdóttir og Guðrún Aradóttir. Í liði Salar voru Kristján Ingimarsson, Arnór Magnússon og Brynjólfur Einarsson.
Umf. Neisti þakkar öllum liðunum tólf, sem tóku þátt fyrir góða þátttöku og áhorfendum, sem fjölmenntu, fyrir stuðninginn. Umf. Neisti
|