12. og 13. október nk. stendur Ágústa Margrét Arnardóttir fyrir sýningunum "Fashion with Flavor" á Grand hótel Reykjavík og 17. nóvember á Hótel Höfn á Hornafirði.
Sýningarnar eru hugmynd Ágústu sem sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu á fatnaði og fylgihlutum úr íslensku fiskiroði, hreindýra- og lambaleðri, hornum, beinum og fleiru.
Grunnhugmynd viðburðanna er að sýna fullnýtingu íslenskra hraéfna á flottann hátt.
Fashion with Flavor - "tíska sem bragð er af" er eina sýningin í heiminum þar sem fyrirsætur bera fram mat klæddar fatnaði úr aukaafurðum matarins sem þær bera fram.
6 rétta matseðill, diskar og dress- ferðalag fyrir öll skilningarvitin.
1. Lax, lax, lax og aftur lax - Léttur og ferskur. 2. Seyðandi saltfiskur - Troll og töfrandi tónar færa okkur suður á bógin. Olé! 3. Lamb á teini, tja eða á beini - Kyndum í kolunum, Hinni býður í grillpartý. 4. Til hafs og heiða - Karfi, hlýri, blóðberg og blómkál. Landið og miðin mætast. 5. Gala og glamúr - Hreindýr og hross skapa galastemmningu með gráðosti, piparkökum, kartöflumús og kræsingum á diskum, og í dressum. 6. Eitthvað blátt, eitthvað nýtt, eitthvað gott, eitthvað hvítt - Eftirminnilegur eftirréttur sem færir þig nær altarinu.
Reykjavík Distellery býður upp á rabarbara- og berjafordrykki - Að sjálfögðu íslensk hráefni og íslensk framleiðsla.
Greta Salóme ásamt stórhljómsveit spilar fjölbreytta og flotta tónlist í takt við hvern munnbita.
Íslenskir matvælaframleiðendur útvega fersk hráefni sem matreiðslumeistarinn Hinrik Carl Ellertsson galdrar fram á ótrúlegan og ógleymanlegan hátt. Þess má til gamans geta að hann Hinrik er bróðir Geira, mannsins hennar Særúnar dóttir Steinunnar og Jóns í Bergholti.
Þáttakendur í Fashion with Flavor eru tæplega 30 og þar af eru fyrirsætur og fleiri frá Djúpavogi.
Miðaverð 9.900 krónur
Pantanir á netfangið veitingar@grand.is í gegnum símann 514 8000. http://www.grand.is/Islenska/Fashion-with-Flavour/
Hér er glæsileg videokynning sem tekur bara 2 mínútur að horfa á og heillast: http://vimeo.com/50430614
Ágústa Margrét Arnardóttir
|