• Forsíða |
• Stjórnsýsla |
• Djúpivogur |
• Cittaslow |
• Náttúra |
• Myndasafn |
• Innsent efni |
• Laus störf |
• Tenglar |
• Hafa samband |
• English |
• Endurvinnslukort |
17.09.2013 - Fárviðri í Djúpavogshreppi |
Fyrsta haustlægðin skall hér á aðfaranótt sunnudagsins 15. september og var hún með hraustlegra móti. Menn eru sammála um að fárviðrið sem hefur geysað hér síðan sé það versta í Djúpavogshreppi í fjöldamörg ár. Veðrið hefur þó verið með skárra móti í dag þó hviður hafi farið vel yfir 30 m/s á veðurstöðinni í Hamarsfirði. Hún sýndi 70,4 m/s að kvöldi sunnudagsins 15. sept. og í gær var jafn vindur þar um 35 m/s og hviður á milli 55-65 m/s. Þá var hins vegar mun verra veður hér úti á Djúpavogi heldur en á sunnudeginum. Björgunarsveitin Bára hefur sinnt fjölmörgum útköllum, bæði hér í bænum og við að aðstoða ferðamenn. Hér voru öll gistipláss pakkfull í gær af ferðamönnum sem hvorki komust lönd né strönd. Eins var töluvert af flutningabílstjórum, sem ekki komust á bílum sínum, fastir hér í tæpa tvo sólarhringa. Trausti Jónsson veðurfræðingur segir að 70,4 m/s sé hæsta vindhviða sem mælst hefur á láglendi svo snemma hausts. Landsmetið á láglendi er einnig í Hamarsfirði en það er 70,5 m/s svo ekki munaði miklu þar. Hér er samantekt yfir umfjallanir í netheimum og í sjónvarpi. ruv.is - Bálhvasst á Djúpavogi og í Hamarsfirði Þá er hér líka myndband frá Magnúsi Kristjánssyni. Að lokum eru hér myndir sem undrritaður tók 15. og 17. september. ÓB
|
Veðurstöðin Papey kl.05:00:00 | |
Hiti: | 1,8 °C |
Vindátt: | NNA |
Vindhraði: | 17 m/sek |
Vindhviður: | 23 m/sek |
Veðurstöðin Teigarhorn kl.05:00:00 | |
Hiti: | 0,6 °C |
Vindátt: | N |
Vindhraði: | 5 m/sek |
Vindhviður: | 9 m/sek |
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.05:00:00 | |
Hiti: | 1,2 °C |
Vindátt: | V |
Vindhraði: | 3 m/sek |
Vindhviður: | 7 m/sek |
Flóð og Fjara: 29.3.2024 |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|