• Forsíða |
• Stjórnsýsla |
• Djúpivogur |
• Cittaslow |
• Náttúra |
• Myndasafn |
• Innsent efni |
• Laus störf |
• Tenglar |
• Hafa samband |
• English |
• Endurvinnslukort |
28.04.2014 - Upplýsingar frá kjörstjórn Djúpavogshrepps varðandi sveitarstjórnarkosningar |
Upplýsingar frá kjörstjórn Djúpavogshrepps varðandi sveitarstjórnarkosningar sem fara eiga fram þann 31. maí 2014. Eins og kemur fram hér að neðan þarf að vera búið að leggja fram framboðslista fyrir kl. 12 á hádegi þann 10. maí 2014. (Sjá leiðbeiningar fyrir þá sem hyggjast bjóða fram lista). Ef aðeins einn framboðslisti berst skal yfirkjörstjórn framlengja framboðsfrest um tvo sólarhringa. Komi ekki fram nýr framboðslisti áður en þeim fresti lýkur verður framkominn framboðslisti sjálfkjörinn ef hann uppfyllir að öllu leyti skilyrði laganna. Ef ekkert framboð berst fyrir þann tíma verða óbundnar kosningar í sveitarfélaginu. (Sjá upplýsingar hér að neðan um óbundnar kosningar). Bundnar hlutfallskosningar Leiðbeiningar fyrir þá sem hyggjast bjóða fram lista Sýnishorn af framboðslista, lista meðmælenda og samþykki frambjóðenda: Sjá nánar á heimasíðunni: www.kosning.is/sveitarstjornarkosningar-2014/ Óbundnar kosningar Óbundnar kosningar eru persónukosningar þar sem kosning er ekki bundin við framboð. Allir kjósendur eru í kjöri nema þeir sem löglega eru undanþegnir skyldu til að taka kjöri og hafa fyrir fram skorast undan því. Hvaða tegund kosninga skal nota hverju sinni Óbundin kosning fer einungis fram ef enginn framboðslisti kemur fram áður en framboðsfresti lýkur eða ef of fá nöfn eru á framkomnum listum til að sveitarstjórn verði fullskipuð. Nánar um óbundnar kosningar Við óbundna kosningu eru allir kjósendur í sveitarfélaginu í kjöri með þeirri undantekningu að þeir sem setið hafa í sveitarstjórn eitt kjörtímabil eða lengur geta skorast undan kjöri, enda tilkynni þeir yfirkjörstjórn það fyrir lok framboðsfrests, þ.e. fyrir 10. maí 2014, sbr. 2. mgr. 18. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna. Skal yfirkjörstjórn auglýsa með viðeigandi hætti nöfn þeirra sem skorast hafa undan endurkjöri. Öllum öðrum sem eru kjörgengir, heilir og hraustir og yngri en 65 ára, er skylt að taka kjöri í sveitarstjórn við óbundna kosningu. Kjörseðill við óbundna kosningu er mjög frábrugðinn kjörseðli við bundnar hlutfallskosningar. Kjörseðillinn er tvískiptur og er efri hluti seðilsins auðar línur (að jafnaði fimm) fyrir nöfn og heimilisföng aðalmanna. Á neðri hluta seðilsins eru jafnmargar tölusettar línur fyrir nöfn og heimilisföng varamanna. Atkvæðagreiðsla fer fram með þeim hætti að kjósandi skrifar (með prentstöfum) í kjörklefa á kjörseðilinn fullt nafn og heimilisfang aðalmanna á þann hluta kjörseðilsins sem ætlaður er fyrir kjör aðalmanna. Fyrir hönd kjörstjórnar í Djúpavogshreppi |
Veðurstöðin Papey kl.21:00:00 | |
Hiti: | 1,9 °C |
Vindátt: | NNA |
Vindhraði: | 15 m/sek |
Vindhviður: | 21 m/sek |
Veðurstöðin Teigarhorn kl.21:00:00 | |
Hiti: | 1,6 °C |
Vindátt: | NNA |
Vindhraði: | 5 m/sek |
Vindhviður: | 8 m/sek |
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.21:00:00 | |
Hiti: | 2,9 °C |
Vindátt: | VNV |
Vindhraði: | 2 m/sek |
Vindhviður: | 7 m/sek |
Flóð og Fjara: 28.3.2024 |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|