• Forsíða |
• Stjórnsýsla |
• Djúpivogur |
• Cittaslow |
• Náttúra |
• Myndasafn |
• Innsent efni |
• Laus störf |
• Tenglar |
• Hafa samband |
• English |
• Endurvinnslukort |
30.05.2014 - Sjómannadagsblað Austurlands 2014 |
Sjómannadagsblað Austurlands er komið út í 20. sinn en líkt og undanfarin ár er blaðið um 90 blaðsíður að stærð. Hátt á annað hundrað nýrra og gamalla ljósmynda prýða blaðið og eru efnistökin vítt og breitt af Austurlandi. Á meðal efnis í blaðinu í ár má nefna viðtal við Tolla Morthens myndlistarmann og fleiri sem voru í áhöfn Mb Rosans, skuttogarans Barða NK, 1976 til 1977 en áhöfn þessi er ein sú skrautlegasta í útgerðarsögu Íslendinga – „Áhöfnin á Rosanum sem aldrei edru sést.“ Stella Steinþórsdóttir, Stella stóra, segir meðal annars frá magnaðri sjóferð síldarsumarið 1961, og rifjaður er upp harmleikur við Hornafjörð árið 1991 er skólaskipið Mímir fórst í innsiglingunni. Guðni Ölversson rekur sögu Eskju í myndum og máli en félagið fagnar í ár 70 ára afmæli og Magni Kristjánsson, skipstjóri frá Norðfirði, segir frá minnisstæðum jólatúr á Vetti SU árið 1957. Fjölmargt annað má finna í blaðinu svo sem umfjallanir um Franska spítalann á Fáskrúðsfirði, hákarl á Vopnafirði, síld á Seyðisfirði, dulmálslykla síldaráranna, sjómannamál og fleira. Sjómannadagsblað Austurlands er komið í dreifingu um allt Austurland en þeir sem búa utan fjórðungsins geta nálgast blaðið í Grandakaffi í Reykjavík eða pantað á vefnum www.sjoaust.is. Ritstjóri Sjómannadagsblaðs Austurlands er sem fyrr Kristján J. Kristjánsson, frá Sjónarhóli á Norðfirði. Fréttatilkynning frá Sjómannadagsblaði Austurlands
|
Veðurstöðin Papey kl.06:00:00 | |
Hiti: | 1,6 °C |
Vindátt: | NNA |
Vindhraði: | 18 m/sek |
Vindhviður: | 23 m/sek |
Veðurstöðin Teigarhorn kl.06:00:00 | |
Hiti: | 0,1 °C |
Vindátt: | NNV |
Vindhraði: | 4 m/sek |
Vindhviður: | 9 m/sek |
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.06:00:00 | |
Hiti: | 0,5 °C |
Vindátt: | V |
Vindhraði: | 1 m/sek |
Vindhviður: | 7 m/sek |
Flóð og Fjara: 29.3.2024 |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|