• Forsíða |
• Stjórnsýsla |
• Djúpivogur |
• Cittaslow |
• Náttúra |
• Myndasafn |
• Innsent efni |
• Laus störf |
• Tenglar |
• Hafa samband |
• English |
• Endurvinnslukort |
12.09.2014 - Ráðlögð viðbrögð vegna loftmengunar |
Tilkynning til íbúa á Austfjörðum frá almannavarnanefnd í umdæmi lögreglustjórans á Eskifirði Hætta er á SO2 gosmengun um allt Austurland (brennisteinstvíildi, brennisteinsdíoxíð) vegna eldgossins við norðanverðan Vatnajökul. Þessi mengun er háð styrk gosmengunarinnar hverju sinni, vindátt og vindstyrk og getur verið varasöm, ef hún nær að mynda bláa eða grábláa móðu. SO2 getur valdið m.a. ertingu í öndunarfærum og augum. Sem stendur eru loftgæðamælar á Reyðarfirði og Egilsstöðum. Íbúar eru hvattir til að fylgjast með aðstæðum utandyra, fréttum og upplýsingaveitum á netinu. Ráðlögð viðbrögð við SO2 gosmengun: Börn og fólk sem er viðkvæmt fyrir, ætti að halda sig innandyra með lokaða glugga og slökkt á loftræstingu þar sem það á við. Helstu upplýsingaveitur: Fylgjast má með mengun frá eldgosinu á vef Umhverfisstofnunar ásamt leiðbeiningum um viðbrögð (www.ust.is). Smellið á myndina hér að neðan til að stækka hana.
|
Veðurstöðin Papey kl.04:00:00 | |
Hiti: | 1,8 °C |
Vindátt: | NNA |
Vindhraði: | 18 m/sek |
Vindhviður: | 23 m/sek |
Veðurstöðin Teigarhorn kl.04:00:00 | |
Hiti: | 1,2 °C |
Vindátt: | N |
Vindhraði: | 5 m/sek |
Vindhviður: | 10 m/sek |
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.04:00:00 | |
Hiti: | 1,5 °C |
Vindátt: | V |
Vindhraði: | 5 m/sek |
Vindhviður: | 11 m/sek |
Flóð og Fjara: 29.3.2024 |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|