• Forsíða |
• Stjórnsýsla |
• Djúpivogur |
• Cittaslow |
• Náttúra |
• Myndasafn |
• Innsent efni |
• Laus störf |
• Tenglar |
• Hafa samband |
• English |
• Endurvinnslukort |
Fréttir
Þú ert hér: Fréttir
03.08.2007 - Uppskera og handverk 2007 í Eyjafjarðarsveit |
Dagana 10.-12.ágúst 2007 verður haldin hátíð sem á sér nú 15 ára langa sögu en það er Handverkshátíð á Hrafnagili. Fáir viðburður eiga sér jafnlangan feril. Hátíðarsvæðið er staðsett 10 km frá Akureyri svo mikill fjöldi fólks hefur gjarnan sótt hátíðina. Setning hátíðar er 10.ágúst klukkan 10. Opnunartími er 10-19 föstudag, laugardag og sunnudag. Í fyrra tók sýningin sem þá hét “Uppskera og handverk 2006” heilmiklum breytingum og vakti það mjög jákvæða athygli. Hún varð að skemmtilegri blöndu handverks- og fjölskylduhátíðar þar sem allir fundu eitthvað við sitt hæfi. Sýningarsvæðið tvöfaldaðist og dæmi voru um að gestir komu alla daga hátíðarinnar því eitthvað nýtt var að gerast dag hvern. Aðgöngumiðinn kostar 1.000.- og gildir alla helgina, það er frítt fyrir börn. Mjög gott samstarf var haft við Fiskidaginn mikla sem er einmitt haldinn sömu helgi ár hvert. Nú verður gengið skrefinu lengra og ýmsar nýjungar þróaðar enn frekar. Nýjungar : · Svokallað verksvæði vakti gífurlega athygli í fyrra og mikið af verkum voru unnin á hátíðinni. Meðal annars var 500 kílóa risi í smíðum, rafmagnsgítar í stærðinni 4 metrar, rennismiðir að störfum, vinnsla á hornum, hnífasmíði og fleira og fleira. Verksvæðið verður ekki minna fjölbreytt í ár. Stór verk í smíðum og fjölbreytt vinna með alls kyns hráefni. Að minnsta kosti eitt stórt verk er í burðarliðnum en það er mótorhjól í fullri stærð skorið í tré. Bæði innlendir og erlendir aðilar mun taka þátt í verksvæðinu. · Krambúð verður rekin af hálfu sýningarinnar og fjöldi listamanna hafa sent muni sína í þessa listmunabúð. Umsjónaraðili að þessu sinni er Sigríður Örvarsdóttir textílhönnuður og sér hún um uppsetningu og val á munum inn í Krambúð. · Dimmuborgarjólasveinar munu líta við á leið sinni í Jólagarðinn þar sem þeir ætla að hitta fyrir Grýlu. www.snowmagic.is verkefnið verður á svæðinu og kynnir sig og það sem þau eru að gera. Loðinlumpa Grýlu verður einnig frumsýnd í tengslum við hátíðina, sjá meðfylgjandi mynd. · Vélasýning var frábær viðbót á síðasta ári því að uppskeruhlutinn verður ekki fullbúinn nema vélar og tæki séu til sýnis á svæðinu. Þetta kryddaði hátíðina verulega og mikil ánægja var meðal gesta með þessa nýjung. Nú verður leitast við að sýna vélar í anda kornræktar á Íslandi, gamli tíminn mun mæta nýja tímanum á sýningarsvæðinu. · Dýrasýning vakti mikla athygli svo það verður endurtekið, ásamt því að Félag landnámshænsna mun koma með sýningu. Í fyrra voru 65 fuglar sem kepptust um titilinn hæna ársins og hani ársins. Gestir völdu fallegustu fuglana. · Nýjung á hátíðinni þetta árið er myndlistarsýning undir berum himni. * Námskeið – í tengslum við hátíðina verða eftirfarandi námskeið á dagskrá: Frekari upplýsingar á www.handverkshatid.is Allar nánari upplýsingar gefur Dóróthea Jónsdóttir í síma 864-3633 |
Veðrið í dag
Veðurstöðin Papey kl.01:00:00 | |
Hiti: | -1,5 °C |
Vindátt: | NA |
Vindhraði: | 6 m/sek |
Vindhviður: | 8 m/sek |
Veðurstöðin Teigarhorn kl.01:00:00 | |
Hiti: | -1,9 °C |
Vindátt: | NA |
Vindhraði: | 3 m/sek |
Vindhviður: | 5 m/sek |
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.01:00:00 | |
Hiti: | -1,3 °C |
Vindátt: | A |
Vindhraði: | 1 m/sek |
Vindhviður: | 4 m/sek |
Flóð og Fjara: 19.4.2024 |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|