• Forsíða |
• Stjórnsýsla |
• Djúpivogur |
• Cittaslow |
• Náttúra |
• Myndasafn |
• Innsent efni |
• Laus störf |
• Tenglar |
• Hafa samband |
• English |
• Endurvinnslukort |
01.12.2014 - Bréf vegna söfnunar á iPad mini tölvum |
Opið bréf til fyrirtækja, félagasamtaka og einstaklinga á Djúpavogi - og annarra velunnarra sem búa nær eða fjær Bréfið hér að neðan var sent til nokkurra fyrirtækja og félagasamtaka á Djúpavogi þann 13. nóvember sl. Eins og þið sjáið er verið að safna fyrir iPad mini tölvum fyrir grunnskólann. Söfnunin gengur ágætlega en ennþá vantar aðeins uppá að markmiðið okkar náist. Ég fékk ábendingu um að ég hafi nú ekki sent bréfið á alla þá staði sem hægt hefði verið að senda á og ákvað því að setja bréfið hér á heimasíðuna. Þeir sem vilja styrkja verkefnið geta haft samband við mig í tölvupósti á netfangið skolastjori@djupivogur.is Hægt er að gefa 1- x mörg stykki af tölvu en einnig er hægt að styrkja um ákveðna upphæð og munið að margt smátt gerir eitt stórt. Með fyrirfram þakklæti,
Til fyrirtækja / félagasamtaka á Djúpavogi Kæru forsvarsmenn Í Djúpavogsskóla, grunnskóla, eru í vetur um 60 nemendur. Starfsfólk skólans er metnaðarfullt og nemendur einnig. Við störfum eftir mörgum háleitum markmiðum og leitumst við að uppfylla þau eftir bestu getu. Ljóst er að síðustu ár höfum við ekki getað staðið við öll markmiðin að fullu, þar sem engar spjaldtölvur eru til staðar í skólanum og fyrir vikið hefur skólinn dregist töluvert aftur úr í tengslum við kennslu í gegnum slík tæki. Sambærilegir skólar eru flest allir farnir að nýta sér þessi tæki í daglegri kennslu, þó er misjafnt hversu margar tölvur eru í hverjum skóla. Við sjáum fyrir okkur að skynsamlegt sé að byrja á svokölluðum bekkjarsettum, þ.e. tvær tölvur á hvern bekk. Við höfum kannað verð á iPad spjaldtölvum, en þær þykja bestar þegar kemur að kennslu, sé tekið mið af þeim kennsluforritum sem í boði eru. Við höfum fengið tilboð í 20 iPad-mini tölvur og töskur utan um þær upp á 960.000.- Hver tölva kostar því um 48.000.- með tösku. Með bréfi þessu langar okkur til að kanna hvort þú og / eða þitt fyrirtæki / félagasamtök sjáið ykkur fært að færa skólanum að gjöf 1 eða 2 tölvur eða styrkja okkur með ákveðinni upphæð að ykkar vali. Ef af því yrði kæmi nafn ykkar fram sem gefandi á heimasíðu skólans og tölvan / tölvurnar merktar þínu / ykkar nafni. Þess má geta að nú þegar hefur Kvenfélagið Vaka ákveðið að styrkja verkefnið. Mér þætti vænt um að fá svar frá ykkur, annað hvort símleiðis, bréfleiðis eða með tölvupósti, eins fljótt og auðið er.
Með fyrirfram þakklæti og kærum kveðjum f.h. nemenda og starfsfólks,
____________________________________ |
Veðurstöðin Papey kl.21:00:00 | |
Hiti: | 1,9 °C |
Vindátt: | NNA |
Vindhraði: | 15 m/sek |
Vindhviður: | 21 m/sek |
Veðurstöðin Teigarhorn kl.21:00:00 | |
Hiti: | 1,6 °C |
Vindátt: | NNA |
Vindhraði: | 5 m/sek |
Vindhviður: | 8 m/sek |
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.21:00:00 | |
Hiti: | 2,9 °C |
Vindátt: | VNV |
Vindhraði: | 2 m/sek |
Vindhviður: | 7 m/sek |
Flóð og Fjara: 28.3.2024 |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|