Fundur í ferða og menningarmálanefnd - Fundargerð 9. mars 2015
Fundur var haldinn í ferða- og menningarmálanefnd mánudaginn 9. mars kl. 16:00 að Bakka 1, Djúpavogi. Fundinn sátu Rán Freysdóttir, Þór Vigfússon, Þorbjörg Sandholt og Erla Dóra Vogler.
Liður 1 Mál Þórarins Hávarðssonar Nefndin leggur til að fréttaefni ÞH verði keypt og telur að þetta séu góðar sögulegar heimildir og vísar málinu til sveitastjórnar til loka ákvörðunar.
Liður 2 Listamannadvöl á Djúpavogi Samþykkt að taka á móti listamanni frá Vesteraalen í listamannadvöl næsta haust/vetur. Erla Dóra verður tengiliður við verkefnið og skoðar möguleika að sækja um styrk.
Liður 3 Endurstika gönguleiðir Nefndin telur að tími sé kominn á að endurstika gönguleiðir sem merktar eru á gönguleiðakort Djúpavogshrepps og kort Birds.is. Erla Dóra leggur til að leita samstarfs við Ferðafélagið og Birds.is við verkefnið.
Liður 4 Tónleikahald og leiksýning Leikfélag ME hefur áhuga á að koma á Djúpavog og sýna fjölskyldu og barnaleikritið Klaufa og kóngsdætur. Sýningin kostar 150.000- , Erla Dóra er búin að leita eftir styrkjum og húsnæði fyrir sýninguna. Kvenfélagið, foreldrafélagið og Hótel Framtíð hafa samþykkt að styrkja verkefnið. Erla Dóra kemur til með að leita eftir frekari styrkjum. Nefndin leggur til að sveitarfélagið styrki verkefnið með einhverjum hætti. Kór Menntaskólans við Hamrahlíð verður með tónleika í Djúpavogskirkju 12. apríl. Fyrri hluta september er fyrirhugað að halda tónleika í Bræðslunni. Þar sem Svanur Vilbergsson og Maja Bugge frumflytja verk.
Liður 5 List án landamæra List án landamæra leitar eftir styrkjum til sveitafélaga í verkefnið. Nefndin telur jákvætt að Djúpavogshreppur taki þátt í verkefninu og greiði hlut í auglýsingakostnaði. Leggur til að Djúpavogshreppur greiði 20.000. Opnunarhátíðin verður 9. maí á Hótel framtíð og víðar í þorpinu.
Liður 6 Stuðningsaðilar Cittaslow Erla Dóra sendi upplýsingar á öll fyrirtæki í Djúpavogshreppi um að gerast stuðningsaðilar Cittaslow. Nokkrar umsóknir hafa borist sem lagðar verða fyrir sveitarstjórn.
Liður 7 Bóndavarðan Erla Dóra kynnir stöðuna á Bóndavörðunni. Stefnt er á að blaðið komi út í lok mars.
Liður 8 Menningarstefna Djúpavogshrepps Ákveðið að Erla Dóra sæki um frest á lokaskilum á menningarstefnu Djúpavogshrepps sem styrkt var af Austurbrú 2011 – 2013.
Liður 9 Bæklingar Erla Dóra kynnti hugmyndir að bæklingum fyrir Djúpavogshrepp sem prenta þarf fyrir sumarið. Ákveðið að Erla Dóra leiti eftir tilboðum í uppsetningu bæklingsins.
Liður 10 Önnur mál Komið hafa fram ábendingar um að það vantaði fleiri WC merkingar og að skoða þurfi skiltamál á Búlandsnesi.
Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum og honum slitið kl. 17:40Ritari: Þorbjörg Sandholt
|