• Forsíða |
• Stjórnsýsla |
• Djúpivogur |
• Cittaslow |
• Náttúra |
• Myndasafn |
• Innsent efni |
• Laus störf |
• Tenglar |
• Hafa samband |
• English |
• Endurvinnslukort |
14.07.2015 - Olga Vocal Ensemble í Djúpavogskirkju | |||
Olga Vocal Ensemble mun halda tónleika í Djúpavogskirkju föstudaginn 24. júlí kl. 20:00. Strákarnir í Olgu héldu tónleika í kirkjunni fyrir tveimur árum síðan og því mikil tilhlökkun í hópnum að endurtaka leikinn enda hljómburður kirkjunnar mjög góður fyrir a cappella söng. Olga Vocal Ensemble færir gleði og hamingju. Gleði og hamingju, sem Olga vill deila með heiminum. Þessir fimm ungu menn eru tilbúnir til að sigra hvert hjarta með kraftmiklum og fallegum söng ásamt einstakri framkomu. Olga fer nýjar leiðir í að nálgast gamlar hefðir. Með einlægri framkomu sinni sameinar hún eldmóð og kímnigáfu í leikrænni tjáningu sem hentar öllum aldurshópum. Efnisskrá Olgu hefur vakið athygli fyrir óhefðbundna uppbyggingu, þar sem kraftmikil klassísk tónlist mætir vinsælum dægurlögum – allt frá íslenskum drykkjuvísum frá miðöldum, til angurværra tóna hinna gömlu góðu daga. Hljómurinn sem einkennir Olgu sameinar alla tónlist í eina heild á mjög áhrifaríkan hátt. Olga leit fyrst dagsins ljós árið 2012 í tónlistarskóla HKU í Utrecht, Hollandi. Hún býr svo sannarlega yfir alþjóðlegum anda en meðlimir hennar eru af hollensku, íslensku og rússnesku bergi brotnu. Þau verk sem hún flytur eru frá fjölmörgum löndum, og eru eins mismunandi og þau eru mörg. Ferill Olgu er sannarlega glæsilegur en hún á nú þegar að baki ótal tónleika á Íslandi sem og erlendis. Frá upphafi hefur hún reglulega farið til Íslands á tónleikaferðalag. Til gamans má geta hefur hún haft það að sið að bjóða Olgum á hefðbundnu tónleika án endurgjalds og mættu í eitt skipti 13 Olgur á tónleika. Það gildir ekki fyrir kvöldverðartónleikana. Olgumenn tóku upp sinn fyrsta geisladisk árið 2014. Þeir hafa setið námskeið hjá Paul Phoenix, sem áður var í The King's Singers, og ættleiddu rauðan ketil sem lukkudýr, en hann gengur undir nafninu Ketill Olguson. Paul Phoenix (fyrrverandi meðlimur The King's Singers) hafði þetta að segja um Olgu: Tónleikadagskrá Olgu í sumar: 22. júlí – Félagsheimilið Hvoll, Hvolsvöllur kl. 20:00 Kvöldverðartónleikar Olga á samfélagsmiðlum:
|
Veðurstöðin Papey kl.20:00:00 | |
Hiti: | 1,9 °C |
Vindátt: | NNA |
Vindhraði: | 16 m/sek |
Vindhviður: | 22 m/sek |
Veðurstöðin Teigarhorn kl.20:00:00 | |
Hiti: | 1,5 °C |
Vindátt: | N |
Vindhraði: | 4 m/sek |
Vindhviður: | 8 m/sek |
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.20:00:00 | |
Hiti: | 1,8 °C |
Vindátt: | S |
Vindhraði: | 2 m/sek |
Vindhviður: | 7 m/sek |
Flóð og Fjara: 28.3.2024 |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|