• Forsíða |
• Stjórnsýsla |
• Djúpivogur |
• Cittaslow |
• Náttúra |
• Myndasafn |
• Innsent efni |
• Laus störf |
• Tenglar |
• Hafa samband |
• English |
• Endurvinnslukort |
24.09.2015 - Bræðralag Ómars Guðjónssonar og Tómasar R. Einarssonar í Löngubúð |
Ómar Guðjónsson og Tómas R. Einarsson munu kynna plötuna Bræðralag á tónleikaferð um landið í haust. Á Djúpavogi munu þeir halda tónleika í Löngubúð laugardagskvöldið 3. október og hefjast þeir kl 21:00. Verð aðgöngumiða er 2.500 kr. Gítarleikarinn Ómar Guðjónsson og kontrabassaleikarinn Tómas R. Einarsson hafa spilað saman í áratug, ýmist tveir einir eða í fjölmennari hljómsveitum. Innanlands og utan: Flatey, Djúpavík, Moskva, Andorra, Berlín, Havana, Washington DC.... Nú hafa þeir gert langþráðan draum að veruleika: að taka upp plötu þar sem þeir semja hvor fyrir annan. Þar er músíkölsk samræða æðsta markmiðið, hvort sem um er að ræða sveiflu, latíntónlist eða ballöður. Upptakan fór fram á Kolsstöðum í Borgarfirði, á sólríkum sumardögum þar sem hvít jöklabreiða bar við augu út um upptökuglugga ásamt hrauni og blómstrandi kjarri. ÓB
|
Veðurstöðin Papey kl.08:00:00 | |
Hiti: | 4,2 °C |
Vindátt: | SSA |
Vindhraði: | 3 m/sek |
Vindhviður: | 3 m/sek |
Veðurstöðin Teigarhorn kl.08:00:00 | |
Hiti: | 3,1 °C |
Vindátt: | V |
Vindhraði: | 1 m/sek |
Vindhviður: | 2 m/sek |
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.08:00:00 | |
Hiti: | 4,4 °C |
Vindátt: | ANA |
Vindhraði: | 4 m/sek |
Vindhviður: | 6 m/sek |
Flóð og Fjara: 20.4.2024 |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|