• Forsíða |
• Stjórnsýsla |
• Djúpivogur |
• Cittaslow |
• Náttúra |
• Myndasafn |
• Innsent efni |
• Laus störf |
• Tenglar |
• Hafa samband |
• English |
• Endurvinnslukort |
30.01.2016 - Riff í Löngubúð |
Íslenskar stuttmyndir af kvikmyndahátíðinni Riff í Löngubúð kl. 20:00. Kostar aðeins kr. 500,- inn.
Spegilmynd Erla Hrund Halldórsdóttir Tvær ólíkar konur fara sín hvora leiðina í lífinu en samt enda þær á svipuðum stað. Byrðar annarrar reynast léttir hinnar.
Bergþór Atli Þór Einarsson Eftir mikinn þrýsting frá foreldrum sínum finnur ungur listmálari óhefðbundna leið til að klára mikilvægt málverk í von um að skapa alvöru meistaraverk.
Hæ pabbi - þótt við þekkjumst ekki neitt Haukur Karlsson Með því að fylgjast með sambandi föður og sonar sem lítið þekkjast kemur í ljós að ekkert er eins verðmætt og vinátta.
Heimildarminnd Jón Ásgeir Karlsson Krakki gerir að gamni sínu heimildamynd um húsið sitt. En hús er ekkert endilega heimili.
Mynstur Valdimar Kúld Snjall rósemispiltur sem finnst hann hvergi tilheyra, hvorki heima hjá sér né með samnemendum sínum, á í baráttu við myrkar hliðar eigin sálarlífs.
Rof Kristín Ísabella Karlsdóttir Róbert er ungur maður sem fótar sig illa í lífinu sökum þunglyndis. Fjölskylda hans tekur með ólíkum hætti á stöðu Róberts en yngri bróðir hans Stefán tekur málin að lokum í sínar hendur.
Þú og ég Ása Helga Hjörleifsdóttir Stelpa og strákur kynnast á kaldri vetrarnóttu. Hún býður honum heim til sín þar sem hlutirnir fara úr böndunum. Dóttir hennar vaknar við lætin og í kjölfarið eiga sér stað ákveðin hlutverkaskipti meðan þær glíma við eftirmála næturinnar.
Kattamaðurinn Barði Guðmundsson Narfi er 75 ára og býr með köttunum sínum í miðbæ Reykjavíkur. Hann hefur lifað litríku lífi en er orðinn þreyttur og þunglyndur. Þegar góðvinur hans kíkir í heimsókn skella þeir sér út á lífið.
|
Til baka |
Veðurstöðin Papey kl.10:00:00 | |
Hiti: | 4,2 °C |
Vindátt: | SSA |
Vindhraði: | 8 m/sek |
Vindhviður: | 10 m/sek |
Veðurstöðin Teigarhorn kl.10:00:00 | |
Hiti: | 4,9 °C |
Vindátt: | NV |
Vindhraði: | 1 m/sek |
Vindhviður: | 6 m/sek |
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.10:00:00 | |
Hiti: | 5,1 °C |
Vindátt: | ANA |
Vindhraði: | 4 m/sek |
Vindhviður: | 7 m/sek |
Flóð og Fjara: 20.4.2024 |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|