• Forsíða |
• Stjórnsýsla |
• Djúpivogur |
• Cittaslow |
• Náttúra |
• Myndasafn |
• Innsent efni |
• Laus störf |
• Tenglar |
• Hafa samband |
• English |
• Endurvinnslukort |
11.01.2016 - Riff á Djúpavogi í lok mánaðarins |
Riff er alþjóðleg kvikmyndahátíð sem haldin er árlega í Reykjavík. Samstarf hefur verið við Sviðslistamiðstöð Austurlands á Egilsstöðum og Riff um að fá nokkrar kvikmyndir af hátíðinni til sýningar á Austurlandi. Að þessu sinni, líkt og áður, fékk Austurland margar glæsilegar kvikmyndir til sýningar. Riff 28.-31. janúar á Austurlandi
Eftirfarandi kvikmyndir verða sýndar í Löngubúð á eftirfarandi dögum á eftirfarandi tímum - takið kvöldin frá! Kostar aðeins kr. 500,- inn.
28. janúar kl. 20:00 - Þrjár kvikmyndir Humarsúpa innifalin eftir Styrmi Sigurðsson Við fylgjum grínistanum Þorsteini Guðmundssyni frá Reykjavíkur til Hríseyjar þar sem hann á að vera með uppistand. Hann tekur upp á ýmsu á leiðinni: hann syngur, hámar í sig skyndibita og hugsar upphátt um málefni á borð við kynlíf og jólin. Einnig hittir hann á aðra skemmtikrafta sem deila sinni reynslu af „túralífinu“ hér á landi.
Á sama báti eftir Höllu Miu Hugmynd fæðist þegar Védís og Snædís kynnast kanadíska kanóa-leiðsögumanninum Oliviu. Þær mynda átta manna teymi og leggja upp í nokkurra daga svaðilför inn í óbyggðir Temagami-svæðisins í Ontario-fylki Kanada. Samskiptaörðugleikar leiða hópinn í ógöngur og taugasjúkdómur eins ferðalangsins gerir þeim erfitt fyrir.
30. janúar kl. 20:00 - Íslenskar stuttmyndir Spegilmynd eftir Erlu Hrund Halldórsdóttur Tvær ólíkar konur fara sín hvora leiðina í lífinu en samt enda þær á svipuðum stað. Byrðar annarrar reynast léttir hinnar.
Bergþór eftir Atla Þór Einarsson Eftir mikinn þrýsting frá foreldrum sínum finnur ungur listmálari óhefðbundna leið til að klára mikilvægt málverk í von um að skapa alvöru meistaraverk.
Hæ pabbi - þótt við þekkjumst ekki neitt eftir Hauk Karlsson Með því að fylgjast með sambandi föður og sonar sem lítið þekkjast kemur í ljós að ekkert er eins verðmætt og vinátta.
Heimildarminnd eftir Jón Ásgeir Karlsson Krakki gerir að gamni sínu heimildamynd um húsið sitt. En hús er ekkert endilega heimili.
Mynstur eftir Valdimar Kúld Snjall rósemispiltur sem finnst hann hvergi tilheyra, hvorki heima hjá sér né með samnemendum sínum, á í baráttu við myrkar hliðar eigin sálarlífs.
Rof eftir Kristínu Ísabellu Karlsdóttur Róbert er ungur maður sem fótar sig illa í lífinu sökum þunglyndis. Fjölskylda hans tekur með ólíkum hætti á stöðu Róberts en yngri bróðir hans Stefán tekur málin að lokum í sínar hendur.
Þú og ég eftir Ásu Helgu Hjörleifsdóttur Stelpa og strákur kynnast á kaldri vetrarnóttu. Hún býður honum heim til sín þar sem hlutirnir fara úr böndunum. Dóttir hennar vaknar við lætin og í kjölfarið eiga sér stað ákveðin hlutverkaskipti meðan þær glíma við eftirmála næturinnar.
Kattamaðurinn eftir Barða Guðmundsson Narfi er 75 ára og býr með köttunum sínum í miðbæ Reykjavíkur. Hann hefur lifað litríku lífi en er orðinn þreyttur og þunglyndur. Þegar góðvinur hans kíkir í heimsókn skella þeir sér út á lífið.
31. janúar kl. 20:00 - Íslenskar stuttmyndir Regnbogapartý eftir Evu Sigurðardóttur Soffía er 14 ára stelpa sem er lögð í einelti og þráir ekkert heitar en að falla í hópinn. Hún tekur afgerandi skref til þess að ná markmiði sínu en það hefur meiri áhrif en hana hafði grunað.
Zelos eftir Þórönna Sigurðardóttur María er kappsfull kona á fertugsaldri. Hún tekur upp á því að panta sér Zelos klón undir því yfirskyni að það nýtist til húsverka og skapi þannig meiri tíma í faðmi fjölskyldunnar. Hún vill ekki síður standast samkeppni við vinkonu sína Ari sem virðist lifa fullkomnu lífi.
Babel hf. eftir Smára Gunnarsson Framkvæmdastjórinn fær þrjá af sínum bestu mönnum til að takast á við erfitt verkefni fyrir einn stærsta viðskiptavin þeirra. Skilja þeir óskir yfirmannsins? Skilja þeir hvorn annan? Skilja þeir lausnina?
Eyðimerkurspjall eftir Ferrier Aurèle Myndbandsverk byggt á samnefndri umræðuröð. Gestirnir velja áfangastað eða slóða í samstarfi við leikstjórann. Þar ræða þeir hugtökin eyðimörk og tómleika.
Pynding.avi eftir Dan Nicholls Karen er fórnarlamb þriggja mannræningja sem taka upp myndband þar sem þeir krefjast lausnargjalds fyrir hana. Karen notar vitsmuni sína til þess að grafa undan sambandi þríeykisins, sem þegar stendur á brauðfótum.
Innflytjandi eftir Einar Erlingsson & Jón Braga Pálsson Stúlka frá Mið-Austurlöndum skrifar föður sínum bréf. Frásögn stúlkunnar fer fram á Farsí og segir frá degi í lífi hennar í nýjum og frábrugðnum heimi.
Bræður eftir Þórð Pálsson Chris er sextán ára. Líf hans tekur beygju þegar stúlka utan af landi kemur óvænt inn í líf hans. En skapstór bróðir hans, David, á eftir að koma þeim í vandræði enn einu sinni.
Narrative conflict eftir Jónas Haux Sögumaður reynir að segja hér sögu feimins manns sem manar sig upp í að bjóða konu á stefnumót. Málin flækjast þegar annar sögumaður er kynntur til leiks sem hefur í hyggju að breyta sögunni, söguhetjum og sviðsetningu.
|
Veðurstöðin Papey kl.10:00:00 | |
Hiti: | 0,5 °C |
Vindátt: | N |
Vindhraði: | 20 m/sek |
Vindhviður: | 27 m/sek |
Veðurstöðin Teigarhorn kl.10:00:00 | |
Hiti: | 0,6 °C |
Vindátt: | N |
Vindhraði: | 8 m/sek |
Vindhviður: | 14 m/sek |
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.10:00:00 | |
Hiti: | 1,5 °C |
Vindátt: | ANA |
Vindhraði: | 3 m/sek |
Vindhviður: | 13 m/sek |
Flóð og Fjara: 28.3.2024 |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|