• Forsíða |
• Stjórnsýsla |
• Djúpivogur |
• Cittaslow |
• Náttúra |
• Myndasafn |
• Innsent efni |
• Laus störf |
• Tenglar |
• Hafa samband |
• English |
• Endurvinnslukort |
Fréttir
Þú ert hér: Fréttir
06.10.2007 - Bandið hans Bubba |
Bubbi Morthens mun leita að söngvara fyrir í hljómsveit sína á Norðfirði í raunveruleikaþáttinn "Bandið hans Bubba" sem hefur göngu sína á Stöð 2 í vetur. Fyrstu áheyrnarprufurnar fara fram í Bolungarvík 10. október, en síðan verður haldið til Akureyrar þann 17. október. Þá verður haldið til Norðfjarðar 24. október þar sem upprennandi söngvarar geta spreytt sig og svo endað í Reykjavík 3. nóvember. Í áheyrnarprufunum gefst keppendum, 18 ára og eldri, færi á að koma fram og syngja fyrir Bubba. Keppendur ráða hvort þeir syngja óstuddir, spila undir sjálfir, notast við undirleik annarra eða syngja við undirleik af bandi. Eingöngu er leyfilegt að flytja lög og texta eftir íslenska höfunda og aðeins er leyfilegt að syngja á íslensku. Lögin mega vera í nýjum útsetningum. Sá sem stendur uppi sem sigurvegari fær 3.000.000 krónur, samning við umboðsmann og útgáfusamning að launum. Áheyrnarprufurnar á Norðfirði verða á Rauðatorginu. Áhugasamir austfirðingar eru hvattir til að skrá sig og mæta í áheyrnaprufurnar á Norðfirði. Hægt að skrá sig hér: http://stod2.visir.is/Bandid-Hans-Bubba/Skraing |
Veðrið í dag
Veðurstöðin Papey kl.07:00:00 | |
Hiti: | 4,7 °C |
Vindátt: | VSV |
Vindhraði: | 2 m/sek |
Vindhviður: | 4 m/sek |
Veðurstöðin Teigarhorn kl.07:00:00 | |
Hiti: | 3,1 °C |
Vindátt: | N |
Vindhraði: | 1 m/sek |
Vindhviður: | 3 m/sek |
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.07:00:00 | |
Hiti: | 4,8 °C |
Vindátt: | A |
Vindhraði: | 3 m/sek |
Vindhviður: | 5 m/sek |
Flóð og Fjara: 20.4.2024 |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|