Kynningarfundur Nýsköpunarmiðstöðar Íslands í Djúpavogshreppi verður haldinn 23. nóvember kl. 16:00 - 18:00 í Havarí á Karlsstöðum, Djúpavogi
Léttar veitingar á meðan kynningu stendur.
Dagskrá: 16:00: Nýsköpunarmiðstöð Íslands kynnir starfsemi sína - Berglind Häsler bóndi, matvælaframleiðandi og tónlistarmaður, Karlsstöðum Djúpavogi býður gesti velkomna. - Katrín Jónsdóttir verkefnastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Djúpavogi segir frá öllum þeim fjölbreyttu verkefnum sem hún sinnir víða um Austurland. - Sigurður Steingrímsson verkefnastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Akureyri um Nýsköpun í starfandi fyrirtækjum. - Karl Friðriksson framkvæmdastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands talar um rannsóknartengt en hagnýtt verkefni sem ber heitið Djúpivogur – framtíðar áskoranir 17:00: Sveitarstjórn kynnir sínar áherslur – Andrés Skúlson heldur fyrirlestur undir yfirskriftinni Djúpivogur - sterkir innviðir og sóknarfæri
Samræður og spurningar á eftir - Prins Póló og Gréta Mjöll taka nokkur lög og boðið verður upp á léttar veitingar frá Karlsstöðum. Á meðan kynningunni stendur geta krakkar á aldrinum 6-16 ára farið í matarsmiðju hjá Svavari Pétri bónda á Karlsstöðum og unnið að skemmtilegu nýsköpunarverkefni. Skráning í smiðju á netfangið berglind@havari.is. |