Ljósin á jólatré Djúpavogshrepps verða tendruð fyrsta sunnudag aðventu, þann 3. desember kl. 17:00, á Bjargstúni. Heppinn grunnskólanemi er dreginn út til að kveikja jólaljósin. Svo verður sungið og dansað kringum jólatréð.
Mögulegt er að jólasveinar kíki í snemmbúna heimsókn niður í mannabyggð og hafi jafnvel eitthvað með sér í pokahorninu. Jólatréð er gjöf frá Skógræktarfélagi Djúpavogs.
Ungmennafélagið Neisti og Björgunarsveitin Bára leggja einnig sitt að mörkum til skemmtunarinnar.
Á meðfylgjandi mynd sjást sveitarstjóri og skrifstofustjóri Djúpavogshrepps í skógræktinni þegar verið var að velja og saga niður jólatréð í ár.
Sveitarstjóri
Gauti Jóhannesson og Anna Sigrún Gunnlaugsdóttir
|