• Forsíða |
• Stjórnsýsla |
• Djúpivogur |
• Cittaslow |
• Náttúra |
• Myndasafn |
• Innsent efni |
• Laus störf |
• Tenglar |
• Hafa samband |
• English |
• Endurvinnslukort |
08.02.2017 - Rúllandi snjóbolti valinn á Eyrarrósarlistann 2017 |
Rúllandi snjóbolti er meðal þeirra sex verkefna sem hafa verið valin á Eyrrarósarlistann 2017. Vigdís Jakobsdóttir, nýr listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík sem heldur utan um Eyrarrósarverkefnið, segir að umsóknir um Eyrarrósina hafi sjaldan verið fleiri en hún verður nú afhent í þrettánda sinn. Áhuginn fyrir verkefninu sé því mikill. „Það er mjög mikið af glæsilegum lista- og menningarverkefnum á landsbyggðinni, það er ein ástæðan fyrir fjölda umsókna. Önnur ástæða er að Eyrarrósin er mjög gott tækifæri til að vekja athygli á þessum góðu verkefnum. Þá hafa peningaverðlaunin sitt að segja,“ segir Vigdís og bætir við að upphæð verðlaunanna hafi nú verið hækkuð, upp í tvær milljónir, og það muni um minna í menningunni, úti á landi sem annars staðar. Um Rúllandi snjóbolta segir í umsögn: Þetta er í annað sinn sem verkefni frá Djúpavogi er valið á listann, en Hammondhátíð Djúpavogs var valin árið 2015. Við óskum Rúllandi snjóbolta innilega til hamingju með tilnefninguna en forsetafrúin Eliza Reid, nýr verndari Eyrarrósarinnar, mun afhenda verðlaunin 16. febrúar næstkomandi við athöfn í Verksmiðjunni á Hjalteyri, sem er handhafi Eyrarrósarinnar frá síðasta ári. Sjá nánar í frétt á mbl.is. ÓB
|
Veðurstöðin Papey kl.13:00:00 | |
Hiti: | 1,3 °C |
Vindátt: | N |
Vindhraði: | 16 m/sek |
Vindhviður: | 24 m/sek |
Veðurstöðin Teigarhorn kl.13:00:00 | |
Hiti: | 0,9 °C |
Vindátt: | N |
Vindhraði: | 8 m/sek |
Vindhviður: | 16 m/sek |
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.13:00:00 | |
Hiti: | 2,1 °C |
Vindátt: | SA |
Vindhraði: | 3 m/sek |
Vindhviður: | 9 m/sek |
Flóð og Fjara: 28.3.2024 |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|