• Forsíða |
• Stjórnsýsla |
• Djúpivogur |
• Cittaslow |
• Náttúra |
• Myndasafn |
• Innsent efni |
• Laus störf |
• Tenglar |
• Hafa samband |
• English |
• Endurvinnslukort |
20.03.2017 - Áfangastaðurinn Austurland tekur flugið |
Stórum áfanga verður náð í verkefninu um Áfangastaðinn Austurland miðvikudaginn 22.mars n.k. þegar ný heimasíða www.austurland.is opnar með viðhöfn á Egilsstaðaflugvelli. Heimasíðunni er ætlað að vera gátt inn í Austurland og er fyrir alla þá sem vilja leita sér upplýsinga um búsetukosti svæðisins, atvinnu og fjárfestingamöguleika. Síðast en ekki síst er síðan gátt fyrir gestina okkar sem vilja heimsækja Austurland og fá nasasjón af austfirskum lífsstíl. Austurland.is mun einfalda fólki og fyrirtækjum að leita hagnýtra upplýsinga um Austurland .Gáttin mun spila stórt hlutverk í að þjónusta austfirsk fyrirtæki og sveitarfélög við að þróa sameiginlega rödd Austulands út á við og leggja grunn að stjórnun áfangastaðarins til framtíðar. Austurland í Reykjavík Í kjölfar opnunar heimasíðunnar á Austurlandi verður Áfangastaðarverkefnið og nýja heimasíðan kynnt á Hönnunarmars föstudaginn 24.mars kl. 18.30 á KEX Hostel í Reykjavík. Tíu tímar af skapandi orku Austurlands verður á boðstólnum þegar Austurland: Make it happen again* hefst á hádegi sama dag. Frá hádegi og fram undir miðnætti verður Kex Hostel fyllt austfirsku andrúmslofti. Hressandi Pecha Kucha örfyrirlestrar og fjölbreytt hönnunarverkefni verða til sýnis ásamt tónlistaratriðum frá austfirskum tónlistarmönnum m.a. Prins Póló. Kex Hostel býður uppá hádegis- og kvöldverðarmatseðil með austfirsku ívafi undir styrkri stjórn hins margrómaða matreiðslumanns, Ólafs Ágústssonar. |
Veðurstöðin Papey kl.22:00:00 | |
Hiti: | 2,1 °C |
Vindátt: | NNA |
Vindhraði: | 16 m/sek |
Vindhviður: | 22 m/sek |
Veðurstöðin Teigarhorn kl.22:00:00 | |
Hiti: | 2,5 °C |
Vindátt: | N |
Vindhraði: | 4 m/sek |
Vindhviður: | 9 m/sek |
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.22:00:00 | |
Hiti: | 2,9 °C |
Vindátt: | ASA |
Vindhraði: | 3 m/sek |
Vindhviður: | 9 m/sek |
Flóð og Fjara: 28.3.2024 |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|