Kæru snillingar. Mig langaði til að biðja ykkur um einn greiða. Við Lára Vilbergsdóttir erum að vinna hörðum höndum að því að styrkja stoðkerfið við frumkvöðla og þá í skapandi greinum. Mig langaði til að athuga hvort þið væruð tilbúin til að eyða 1 klst. með okkur þann 7. apríl í Djúpinu frumkvöðlasetri. Þessi klst. færi þá í það að lista upp þau atriði sem eru góð og þau sem þarf að bæta og munum við gera það í vinnustofu. Við lofum góðum mat með þessu og almennt kósýheitum :) Með ósk um góðar viðtökur og vilja til að hjálpa okkur Láru að gera þetta stoðkerfi almennilegt.
Kveðja; Katrín Jónsdóttir |