Fréttir
18.07.2017 - Stikun gönguleiða á Búlandsnesi
 

Ef þið hafið gaman af góðum félagsskap, göngu á fallegu svæði, grilluðum pylsum og því að styrkja góð málefni, þá mælum við með því að þið takið laugardaginn 22. júlí frá. Þá stendur til að endurstika gönguleiðir á Búlandsnesinu.

Við gefum okkur auðvitað að veðrið muni leika við okkur og að þetta verði fjölskylduvænn samveru-vinnudagur.

Mæting 22. júlí er kl. 10:00 á Bjargstúninu við hliðina á Við Voginn. Þar verður skipt í hópa sem dreift verður á nokkrar gönguleiðir á Búlandsnesinu. Svo verður stikað, borðað nesti, stikað meira og loks enda allir á sama stað og grilla saman pylsur.

 

Allir hafi með sér:

  • Hádegisnesti
  • Drykkjarvatn fyrir daginn
  • Vinnuföt (ekki verra að hafa vinnuhanska)
  • Við verðum með nokkra bakpoka fyrir stikur, en ef einhverjir eiga gamla bakpoka sem þeim er ekki annt um þá væri gott að kippa þeim með.
  • Ruslapoka til að kippa með rusli sem verður á vegi okkar

 

Djúpavoghreppur er í samstarfi við Ferðafélag Djúpavogs, Björgunarsveitina Báru og Ungmennafélagið Neista vegna stikuninnar og fá félögin styrk fyrir verkið. Félagsmenn, sem og allir aðrir, eru því hvattir til að hjálpa til og styrkja þannig félögin.

Stikunin er hluti af verkefninu Efling göngumenningar og gönguferðamennsku í Djúpavogshreppi sem styrkt er af Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.

 

Erla Dóra Vogler

Ferða- og menningarmálafulltrúi


Veðrið í dag
Veðurstöðin Papey kl.02:00:00
Hiti:-1,4 °C
Vindátt:NA
Vindhraði:7 m/sek
Vindhviður:9 m/sek
 
 
Veðurstöðin Teigarhorn kl.02:00:00
Hiti:-1,8 °C
Vindátt:V
Vindhraði:1 m/sek
Vindhviður:4 m/sek
 
 
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.02:00:00
Hiti:-1,6 °C
Vindátt:VSV
Vindhraði:3 m/sek
Vindhviður:4 m/sek
 
 
Flóð og Fjara: 19.4.2024
smþmffl
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
             
Fjölmenningarsetur
Fiskmarkaður Djúpavogs
Ísland.is