• Forsíða |
• Stjórnsýsla |
• Djúpivogur |
• Cittaslow |
• Náttúra |
• Myndasafn |
• Innsent efni |
• Laus störf |
• Tenglar |
• Hafa samband |
• English |
• Endurvinnslukort |
07.07.2017 - Opnun Rúllandi snjóbolta/9 í Bræðslunni |
Samtímalistasýningin Rúllandi snjóbolti/9, Djúpivogur verður opnuð með viðhöfn laugardaginn 15. júlí kl. 15:00. Verið hjartanlega velkomnin á opnunina! - Sérlegur gestur verður Signý Ormarsdóttir, verkefnasjóri menningarmála hjá Austurbrú, og mun hún opna sýninguna. - Kvenfélagið Vaka mun sjá um veitingar úr héraði, í anda Cittaslow - Langabúð mun sjá um sölu áfengra veitinga - Katrín frá Núpi mun leika nokkur lög - Gjörningur eftir Tuma Magnússon - Ræðuhöld og fleira
2017 er fjórða sumar listasýningarinnar á Djúpavogi og verður hún opin alla daga frá 16. júlí til 20. ágúst kl. 11:00-16:00. Aðgangur er ókeypis og við reiknum með að bæði íbúar Djúpavogshrepps, Austfirðingar og Íslendingar allir, sem og auðvitað erlendir ferðamenn, muni sækja sýninguna af kappi líkt og síðustu þrjú sumur.
Á Rúllandi snjóbolta/9, Djúpivogur verða sýnd verk eftirfarandi 31 listmanna: Árni Ingólfsson / Árni Páll Jóhannsson / Arnout Mik / Dagrún Aðalsteinsdóttir / Egill Sæbjörnsson / Gjörningaklúbburinn / Guðlaug Mía Eyþórsdóttir / Guido van der Werve / Haraldur Jónsson / Helgi Þórsson / Hrafnkell Sigurðsson / Hreinn Friðfinnsson / Kan Xiuan / Kristján Guðmundsson / Magnús Logi Kristinsson / Margrét Blöndal / Marlene Dumas / Meiya Lin / Mercedes Azpilicueta / Ólafur Elíasson / Pauline Curnier-Jardin / Ragnar Kjartansson / Sara Björnsdóttir / Sigurður Guðjónsson / Sigurður Guðmundsson / Sirra Sigrún Sigurðardóttir / Stevens Vaughn / Tumi Magnússon / Þór Vigfússon / Wei Na / Yang Jian
Styrktaraðilar Rúllandi snjóbolta/9, Djúpivogur eru: JOSIKANGA, Uppbyggingarsjóður Austurlands, Myndlistarsjóður, Orkufjarskipti og Fiskeldi Austfjarða. Við þökkum styrktaraðilum sýningarinnar kærlega fyrir stuðninginn!
|
Veðurstöðin Papey kl.16:00:00 | |
Hiti: | 1,8 °C |
Vindátt: | NNA |
Vindhraði: | 18 m/sek |
Vindhviður: | 24 m/sek |
Veðurstöðin Teigarhorn kl.16:00:00 | |
Hiti: | 1,7 °C |
Vindátt: | N |
Vindhraði: | 5 m/sek |
Vindhviður: | 11 m/sek |
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.16:00:00 | |
Hiti: | 2,5 °C |
Vindátt: | VSV |
Vindhraði: | 5 m/sek |
Vindhviður: | 10 m/sek |
Flóð og Fjara: 28.3.2024 |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|