Events
24.09.2017 - Cittaslow sunnudagurinn - matur og menning úr héraði

Cittaslow sunnudagurinn 2017

Langabúð, 24. september, kl. 11:00-14:00.

Cittaslow sunnudagurinn er haldinn ár hvert síðasta sunnudag í september í öllum aðildarsveitarfélögum Cittaslow. Að þessu sinni verður þemað okkar matur og menning úr héraði.

Allir sem gera einhverja rétti að hluta eða öllu leyti úr hráefni héðan úr sveitarfélaginu (t.d. úr fisk, mjólk, sveppum, kjöti, berjum, grösum, rabbarbara eða kartöflum), vinna handverk úr hráefnum sem hér finnast (t.d. ull, steinum, beinum, hornum, skeljum og við), taka ljósmyndir, skrifa, mála eða gera annað með mat- eða menningu sem tengist Djúpavogshreppi, eða hráefnum héðan, eru endilega beðnir um að taka það með sér og deila með öðrum íbúum.

Félagasamtök, sem og fyrirtæki sem starfa í anda Cittaslow, eru auk þess hvött vera með kynningar og flott væri að hafa vöru sem unnin er úr hráefnum úr Djúpavogshreppi til sölu.

Nokkrir punktar sem varða skipulag dagsins:

  • Langabúð verður opin frá kl. 10:00 fyrir þá sem vilja mæta fyrr og koma sér fyrir áður en húsið opnar formlega.
  • Reiknað er með því að vera með hlaðborð fyrir matvöru en einnig er hægt að fá sér borð. Miðar verða á staðnum þannig að hægt er að merkja hvern rétt. Þá væri gaman að taka með sér nokkur eintök af uppskriftum, sé það eitthvað sem áhugi er fyrir að dreifa til áhugasamra.
  • Gaman væri að hafa bæði handverk og handavinnu til sýnis, þ.e. hvort um sig lokaafurðir og verk sem verið væri að vinna á staðnum sem hægt er að sjá og dást að – útskurð, prjón, vefnað eða enn annað.
  • Ljósmyndarar eða myndlistarmenn geta bæði sýnt verk sín og verið að vinna að verkum í Löngubúð.
  • Stefnt er að því að einhver lifandi dagskrá verði í boði á heila tímanum (kl. 12:00 og 13:00). Þá verður hljóðnemi til taks fyrir þá sem vilja taka í hann, hvort sem er til að taka lagið eða lesa upp sögur, kvæði eða annað.
  • Þeir og þær sem eiga íslenska búninga eru hvött til að koma í þeim.
  • Veitt verða verðlaun í lok dags til barns í flottasta Cittaslow sniglabúningnum!

Óskað er eftir því að fólk skrái sig hjá Ferða- og menningarmálafulltrúa, Erlu Dóru (s. 859-0345 eða með því að senda póst á erla@djupivogur.is) og taki þá fram hvort þörf sé á vegg, borði, hljóðnema, skjávarpa eða hverju sem er.

 Þátttaka er auðvitað ókeypis og öllum opin. Leikurinn er til þess gerður að skemmta okkur saman!

 

 

 

Til baka

Veðrið í dag
Veðurstöðin Papey kl.09:00:00
Hiti:0,0 °C
Vindátt:NNV
Vindhraði:4 m/sek
Vindhviður:7 m/sek
 
 
Veðurstöðin Teigarhorn kl.09:00:00
Hiti:-0,6 °C
Vindátt:N
Vindhraði:3 m/sek
Vindhviður:6 m/sek
 
 
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.09:00:00
Hiti:0,1 °C
Vindátt:A
Vindhraði:1 m/sek
Vindhviður:3 m/sek
 
 
Flóð og Fjara: 19.4.2024
smþmffl
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        
             
Fjölmenningarsetur
Fiskmarkaður Djúpavogs
Ísland.is