• Forsíða |
• Stjórnsýsla |
• Djúpivogur |
• Cittaslow |
• Náttúra |
• Myndasafn |
• Innsent efni |
• Laus störf |
• Tenglar |
• Hafa samband |
• English |
• Endurvinnslukort |
31.03.2018 - Kennara vantar næsta skólaár |
Næsta skólaár eru fjölmargar stöður lausar við Djúpavogsskóla. Djúpavogsskóli er lítill en vaxandi skóli sem samanstendur af grunn- og tónskóla. Í grunnskólanum eru um 70 nemendur. Gott samstarf er við leikskólann. Einnig er mjög gott samstarf við Umf. Neista en yfir 90% nemenda grunnskólans stunda æfingar hjá ungmennafélaginu og taka þær við strax að loknu skólastarfinu. Í Djúpavogsskóla er lögð mikil áhersla á umhverfismennt og átthagafræði og stendur nú yfir innleiðing á hugmyndafræði Cittaslow en sveitarfélagið Djúpavogshreppur varð aðili að Cittaslow hæglætishreyfingunni árið 2013. Grunnskólinn Í grunnskólann vantar umsjónarkennara í 1. og 2. bekk (samkennsla), 3. og 4. bekk (samkennsla) og 5. bekk. Þá vantar kennara í textílmennt (um 10 kst. á viku), heimilisfræði (um 10 kst. á viku), íþróttir og sund (16 kst. á viku), tungumál á mið- og unglingastigi (um 20 kst. á viku). Einnig vantar kennara í upplýsinga- og tæknimennt um 7 st. á viku. Okkur vantar líka þroskaþjálfa í 100% starf. Kennarar og leiðbeinendur við grunnskólann vinna eftir kjarasamningi KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Skólastjóri, Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir veitir nánari upplýsingar á skolastjori@djupivogur.is eða í síma 470-8713. Umsóknarfrestur er t.o.m. 18. apríl 2018. Umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu grunnskólans http://djupivogur.is/grunnskoli/ |
Veðurstöðin Papey kl.13:00:00 | |
Hiti: | 0,2 °C |
Vindátt: | NNA |
Vindhraði: | 14 m/sek |
Vindhviður: | 20 m/sek |
Veðurstöðin Teigarhorn kl.13:00:00 | |
Hiti: | 1,1 °C |
Vindátt: | NNV |
Vindhraði: | 7 m/sek |
Vindhviður: | 13 m/sek |
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.13:00:00 | |
Hiti: | 0,7 °C |
Vindátt: | V |
Vindhraði: | 16 m/sek |
Vindhviður: | 22 m/sek |
Flóð og Fjara: 29.3.2024 |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|