Faðirvorahlaup var haldið í Skógrækt Djúpavogs á föstudaginn. Góð þátttaka var í hlaupinu en hátt á fimmta tug mættu í hlaupið sem fram fór í blíðskaparveðri. Skógræktarfélag Djúpavogs var búið að merkja hlaupaleiðina með sjálflýsandi plaststöngum og krakkar úr 10. bekk mættu uppáklædd sem ýmsar kynjaverur. Í upphafi var sagt frá tilurð hlaupsins og hlaupið svo ræst með því að hleypa af skoti úr haglabyssu. Þegar þátttakendur komu í mark, eftir að hafa ýmist gengið en hlaupið um skógarstíga eftir að hafa mætt kynjaverunum hryllilegu, fengu þeir hressingu og útprentað Faðir vor, sér til halds og trausts í ferðum sínum í myrkri. Skógræktarfélagið á þakkir skyldar fyrir aðstoð við hlaupið að ekki sé nú minnst á hið óeigingjarna starf sem félagið hefur unnið í þeim unaðsreit sem skógræktin er. Krökkum í 10. bekk er einnig þökkuð aðstoðin svo og öllum þeim sem tóku þátt í hlaupinu. Myndir má nálgast hér Myndir og texti: KI
|