Arnar Jón, Aron Daði og Jóhann Atli, nemendur 10. bekkjar tóku þátt í undankeppni Íslenskukeppni grunnskólanna á Austurlandi, en fyrri hluti keppninnar fór fram á Fáskrúðsfirði í gær. Keppnin ber nafnið "Íslenskan er okkar mál" og er það menningarmálanefnd Vopnafjarðarhrepps sem á hugmyndina og sér um framkvæmdina. Skemmst er frá því að segja að drengirnir þrír, sem kepptu á móti liði frá Egilsstaðaskóla, sigruðu og eru því komnir áfram í undanúrslit. Skólastjóri var í fylgd með drengjunum og var mjög stoltur af strákunum sínum sem sýndu snilldartakta. Undanúrslitin fara fram á Egilsstöðum fimmtudaginn 6. desember nk. og úrslitin síðar sama daginn. Eins og í fyrra verður úrslitaviðureignin send beint út í svæðisútvarpinu. HDH |