Þá er Keppnisdögunum lokið að þessu sinni. Það er samdóma álit okkar allra í Grunnskóla Djúpavogs að einstaklega vel hafi til tekist þetta árið og gaman að fá nemendur og starfsfólk Grunnskóla Breiðdalshrepps til að vera með okkur. Keppnin í ár var jöfn og spennandi og skildu aðeins tvö stig að bæði hjá yngri hópunum og eldri hópunum. Sigurvegarar í yngri deildinni voru Samlokusímarnir, með 36 stig, en hjá eldri sigruðu Það er búið að breyta því, með 33 stig. Bæði þessi lið fá í verðlaun pizzuveislu á Hótel Framtíð. Háttvísiverðlaunin í ár hlaut liðið Jesóa Gibsh, en það er gaman að segja frá því að sigurliðin í eldri og yngri voru með jafnmörg stig og þau. Viljum við halda því fram að það að sýna prúðmennsku og samheldni í liðunum, skili sér tvímælalaust í góðum árangri.
Þegar keppninni var lokið í morgun dönsuðum við og lékum okkur saman í íþróttahúsinu. Ótrúleg stemning var í húsinu og mikið fjör. Þar sem hirðljósmyndari Djúpavogshrepps, Ólafur Björnsson, fór hamförum með myndavélina ákvað ég að setja margar myndir inn á heimasíðuna. Til að auðveldara sé að skoða þær skipti ég þeim í tvennt.
Öskudagur, fyrri hluti
Öskudagur, seinni hluti
HDH |