![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() Eskilsey og Hrómundarey Ingólfur og Hjörleifur á Geithellum í Álftafirði Sú sögn hefur lifað hér um slóðir, að fóstbræðurnir Ingólfur Arnarson, talinn fyrsti landnámsmaður á Íslandi, og Leifur Hróðmarsson (sem síðar nefndist Hjörleifur) hafi haft vetursetu á Geithellum í Álftafirði, sinn fyrsta vetur á Íslandi. Bústaður þeirra átti að hafa verið við hól veðst í túninu. Landnáma segir: „Þeir fóstbræður bjuggu skip mikið, er þeir áttu, og fóru að leita lands þess, er Hrafna-Flóki hafði fundið og þá var Ísland kallað. Þeir fundu landið og voru í Austfjörðum í Álftafirði hinum syðra. Þeim virtist landið betra suður en norður. Þeir voru einn vetur á landinu og fóru þá aftur til Noregs." Þjóðrekur og Björn hávi í Berufirði Þjóðrekur er sá landnámsmaður sem talinn er upphafsmaður byggðar við Berufjörð. Frá honum segir svo í Landnámu: „Þjóðrekur hét maður. Hann nam fyrst Breiðdal allan, en stökk braut þaðan fyrir Brynjólfi og ofan í Berufjörð og nam alla hina nyrðri strönd Berufjarðar og fyrir sunnan Búlandsnes og inn til Rauðaskriðna öðrum megin og bjó þrjá vetur þar, er nú heitir Skáli. Síðan keypti Björn hinn hávi jarðir af honum og eru frá honum Berfirðingar komnir" Má því ætla að Skáli sé landnámsjörð og aðsetur fyrsta bónda við Berufjörð. Talið er að Björn hávi hafi búið á Búlandsnesi áður en hann kaupir jarðir af Þjóðreki, enda er nafnið Búlandsnes gamalt og er til þegar Landnáma er skráð. Gautavík snemma verslunarstaður Gautavík er við Berufjörð norðanverðan og er elsti verslunarstaðurinn hér um slóðir. Bæði í Njálssögu og Fljótdælasögu segir frá skipakomum og verslun í Gautavík. Úlfur, Eskill og Hrómundur Í þjóðsögum segir svo frá að á landnáms- eða söguöld hafi þrír bræður, Úlfur, Eskill og Hrómundur, valið sér bústað í eyjum úti fyrir Hamarsfirði og Álftafirði eystri. Eyjar þessar eru síðan við þá kenndar. Sagt er, að þeir séu heygðir hver í sinni ey, og til skamms tíma hafa menn talið sig vita, hvar haugar þeirra væru. Eyjar þessar eru: Úlfsey, sem liggur nyrst í eyjaklasa þeim, sem er úti fyrir Búlandstanga. |
| Veðurstöðin Papey kl.11:00:00 | |
| Hiti: | 2,7 °C |
| Vindátt: | N |
| Vindhraði: | 10 m/sek |
| Vindhviður: | 14 m/sek |
| Veðurstöðin Teigarhorn kl.11:00:00 | |
| Hiti: | 4,9 °C |
| Vindátt: | Logn |
| Vindhraði: | 0 m/sek |
| Vindhviður: | 3 m/sek |
| Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.11:00:00 | |
| Hiti: | 4,1 °C |
| Vindátt: | SSV |
| Vindhraði: | 1 m/sek |
| Vindhviður: | 5 m/sek |
| Flóð og Fjara: 12.4.2026 | |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|

















