![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Eggin í Gleðivík eru útilistaverk eftir Sigurð Guðmundsson, einn fremsta listamann íslensku þjóðarinnar. Um er að ræða 34 eftirmyndir eggja jafn margra varpfugla í Djúpavogshreppi. Stærst er lómseggið, en lómurinn er einkennisfugl sveitarfélagsins. Eggin standa á steyptum stöplum sem áður héldu uppi löndunarröri Bræðslunnar sem stendur innst í Gleðivík, meðan hún var starfrækt. Listaverkin endurspeglar tengingu Djúpavogshrepps við náttúruna og áhuga íbúa þess og gesta á því fjölbreytta fuglalífi sem þar fyrirfinnst. Verkin voru vígð með formlegum hætti við Gleðivík 14. ágúst árið 2009 og eru nú orðin meðal helstu aðdráttarafla bæjarins. Hér að neðan eru nokkrar myndir frá undirbúningi, vígsludeginum svo og af listaverkinu sjálfu lesendum síðunnar til yndisauka. Frá oddvita sveitarfélagsins, Andrési Skúlasyni: "Fyrir hönd sveitarfélagsins vill undirritaður nota tækifærið hér og þakka listamanninum sérstaklega skemmtilega og gefandi tíma meðan hann dvaldi í Himnaríkinu sínu hér á Djúpavogi." Á þessari síðu má sjá hvernig Eggin voru gerð.
|
| Veðurstöðin Papey kl.15:00:00 | |
| Hiti: | 9,5 °C |
| Vindátt: | NNA |
| Vindhraði: | 14 m/sek |
| Vindhviður: | 20 m/sek |
| Veðurstöðin Teigarhorn kl.15:00:00 | |
| Hiti: | 10,4 °C |
| Vindátt: | A |
| Vindhraði: | 4 m/sek |
| Vindhviður: | 6 m/sek |
| Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.15:00:00 | |
| Hiti: | 10,1 °C |
| Vindátt: | SSA |
| Vindhraði: | 1 m/sek |
| Vindhviður: | 3 m/sek |
| Flóð og Fjara: 08.8.2026 | |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|











































