![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Rúllandi snjóbolti/7, Djúpivogur 2. júlí - 21. ágúst 2016 2016 var þriðja sumar nútímalistasýningarinnar Rúllandi snjóbolta í Bræðslunni á Djúpavogi. Sýningin var opin alla daga kl. 11:00-16:00 frá 3. júlí til 21. ágúst. Við formlega opnun sýningarinnar 2. júlí bar kvenfélagið Vaka fram yndælis heimagert rúgbrauð með plokkfiski, úr fiski í boði Búlandstinds, í anda Cittaslow. Sérlegur gestur opnunarinnar var Katrín Jakobsdótttir, fyrrverandi mennta- og menningarmálaráðherra. Um 4.300 manns sóttu sýninguna og var aðgangur ókeypis. Á Rúllandi snjóbolta/7 voru sýnd verk eftirtalinna 32 listmanna frá Íslandi og sex öðrum þjóðernum: Íslenskir listamenn Berglind Ágústsdóttir / Dagrún Aðalsteinsdóttir / Ragnar Kjartansson / Sigurður Guðmundsson / Magnús Pálsson / Arna Óttarsdóttir / Hreinn Friðfinnsson / Kristján Guðmundsson / Þór Vigfússon / Hrafnkell Sigurðsson / Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar / Árni Páll Jóhannsson / Ragna Róbertsdóttir / Rúrí / Rúna Þorkelsdóttir / Hekla Dögg / Ólöf Nordal / Finnbogi Pétursson / Egill Sæbjörnsson / Elín Hansdóttir / Margrét Blöndal / Olga Bergmann Listamenn við Rijksakademie, Amsterdam í Hollandi Juliaan Andeweg (NL) / Josefin Arnell (SE/NL) / Mercedes Azpilicueta (IT/AR/NL) / Pauline Curnier Jardin (FR) / Marije Gertenbach (NL) / Tamar Harpaz (IL/US) / Christine Moldrickx (DE) / Matthijs Munnik (NL) / Eva Spierenburg (NL) / Robbert Weide (NL)
Þrír listamenn gáfu Djúpavogshreppi verk Djúpavogshreppur hlaut þrjár merkar gjafir sem afhentar voru formlega við opnun Rúllandi snjóbolta/7, Djúpivogur. Þeir Sigurður Guðmundsson, Hrafnkell Sigurðsson og Þór Vigfússon gáfu Djúpavogshreppi hver um sig verk. Þór gaf ónefnt verk unnið á mdf frá árinu 2016 (2005) sem sýnt var á einkasýningu hans í gallerí i8 vorið 2016. Sigurður gaf verkið Growing - Declining - Rotating, sem sýnt var í fyrsta sinn utan Kína á Rúllandi snjóbolta/7, og samanstendur af 30 egg- og kúlulaga skúlptúrum úr postulíni sem unnir voru árið 2004. Hrafnkell gaf Djúpavogshreppi útilistaverkið Upprif sem hann vann með aðstoð heimamanna sumarið 2015 meðan hann var í listamannadvöl á Djúpavogi í tengslum við Rúllandi snjóbolta/6. Það er sveitarfélaginu mikill heiður að taka á móti þessum gjöfum.
Djúpavogshreppur og Kínversk-evrópska menningarmiðstöðin vilja þakka þeim ótalmörgu sem lögðu hönd á plóg þannig að sýningin gæti orðið að veruleika. Uppbyggingarsjóður Austurlands og Mundriaan Fund styrktu Rúllandi snjóbolta/7, Djúpivogur. Við kunnum aðstandendum sjóðanna kærar þakkir fyrir stuðninginn. Sýningarskrá Rúllandi snjóbolta/7, Djúpivogur
Nokkrar myndir frá Rúllandi snjóbolta/7, Djúpivogur:
|
| Veðurstöðin Papey kl.11:00:00 | |
| Hiti: | 9,7 °C |
| Vindátt: | NNV |
| Vindhraði: | 15 m/sek |
| Vindhviður: | 19 m/sek |
| Veðurstöðin Teigarhorn kl.11:00:00 | |
| Hiti: | 9,7 °C |
| Vindátt: | NNV |
| Vindhraði: | 5 m/sek |
| Vindhviður: | 14 m/sek |
| Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.11:00:00 | |
| Hiti: | 9,4 °C |
| Vindátt: | VSV |
| Vindhraði: | 14 m/sek |
| Vindhviður: | 19 m/sek |
| Flóð og Fjara: 07.9.2026 | |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|






















