Áhugaverðir staðir

Eggin í Gleðivík

Listaverkið sem ber nafnið „Eggin í Gleðivík“ er allt unnið í granít en um er að ræða þrjátíu og fjórar nákvæmar eftirmyndir eggja valinna íslenskra varpfugla. Eggin eru öll af svipaðri stærð nema hvað egg lómsins sem valinn var einkennisfugl fyrir svæðið er áberandi stærst. Listaverkið var vígt við formlega athöfn þann 14. ágúst 2009.

Sjá hér kort með lýsingu á leiðinni að listaverkinu.

Eitt af eggjunum í Gleðivík

Bóndavarða

Austan við kauptúnið á Djúpavogi er allhár ás sem heitir Bóndavörðuhraun og efst á honum Bóndavarða. Ekki er ljóst í hvaða tilgangi varðan var upphaflega hlaðin en munnmæli eru um að eftir Tyrkjaránið hafi menn staðið vörð þar á hrauninu og þá tínt saman í vörðu. Aðrir telja hana verk bænda sem komu í kauptíð til Djúpavogs og lituðust þaðan um eftir skipakomu. Nú tróna loftnet og endurvarpstaurar við hlið vörðunnar til vitnis um breytta tíma. Útsýnisskífa auðveldar mönnum  leitina að örnefnum nær og fjær um svið sem nær frá Hvalneshorni sólarsinnis um fjöll við Álftafjörð, Hamarsfjörð og Berufjörð; í austri sést til Papeyjar og niður undan liggur byggðin og vogskorin suðurströnd Berufjarðar en yfir gnæfir Búlandstindur (1069 m), eitt formfegursta fjall á Austurlandi og þótt víðar væri leitað.

Útsýnisskífa á Bóndavörðunni

Sandarnir

Eitt vinsælasta útivistarsvæðið á Djúpavogi er í daglegu tali nefnt sandarnir en það er svæðið í kringum vötnin, Fýluvog og Breiðavog, við flugvöllinn út á Búlandsnesi. Á þessu svæði er fuglalíf mjög fjölbreytt og svæðið eitt það besta til fuglaskoðunar á Djúpavogi. Við enda flugbrautarinnar er fallega strandlengja þar sem vinsælt er að ganga meðfram sjónum.

 

Sandarnir, fyrir miðri mynd sést í Ketilboðaflesið

 

Rakkaberg

Rakkaberg er hár berggangur sem myndar nær lóðréttan vegg mót austri, en inn frá honum gengur klettabrík eins og mænir og hallar frá henni til beggja hliða. Skiptar skoðanir eru um merkingu örnefnisins, sumir telja klettinn minna á sitjandi rakka, aðrir halda að nafnið sé dregið af lýsingarorðinu rakkur í merkingunni upprétt. Margir vilja meina að Rakkaberg sé álfakirkja og ýmsar sögur eru til um álfa sem sést hafa við Rakkabergið, prúðbúnir á leið til kirkju. Innan við Rakkaberg eru Hermannastekkar, nafn frá Tyrkjaráni, og er þar nú grafreitur.

Hálsaskógur

Hálsaskógur er staðsettur í um 2.km. fjarlægð frá Djúpavogi, beygt til hægri við afleggjarann út á Djúpavog. Í skóginum eru nokkrar gönguleiðir, listaverkum skreyttar eftir yngstu íbúa Djúpavogs, börnin á leikskólanum. Þar er einnig tilvalinn staður til þess að setjast niður og borða nesti í notalegu umhverfi.

Tröppustígur í Hálsaskógi